Einn umtalaðasti listamaður landsins þessa dagana, Hugleikur Dagsson, flytur uppistand í Hofi í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 21. Í viðtali við Akureyri vikublað segist Hugleikur hafa gert uppistand í 3-4 ár. Ari Eldjárn, frændi hans, hafi hvatti sig til að prófa. „Ég hef alltaf haft áhuga á þessu, en gerði aldrei ráð fyrir að þora að framkvæma uppistand. Maður verður skíthræddur, það er óhugnanleg tilfinning að fara upp á svið og vera fyndinn - ef fólk hlær ekki þá er það martröð!“
Hugleikur, sem slegið hefur í gegn með þætti sína í sjónvarpinu, segir að maður í uppistandi geti verið töluvert groddalegri á sviði en í veruleikanum. Það er margt sem maður má segja upp á sviði sem má ekki í daglegu tali. Ég geng í raun fram af sjálfum mér oft, það fylgir því svo mikið adrenalín að vera á sviðinu að maður verður ný framlenging á sjálfum sér.“
-BÞ





