Ákveðið hefur verið að ráða Kristínu Ágústsdóttur í starf forstöðumanns markaðs- og kynningarmála hjá Háskólanum á Akureyri.
Kristín er með MSc gráðu í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum og starfaði á árunum 2006-2012 við markaðs og kynningarmál í Háskólanum í Reykjavík.
Þetta kemur fram í bréfi sem umsækjendur um stöðuna fengu í vikunni en hátt í 30 manns sóttu um stöðuna.





