Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga- og handlækningasviðs Sjúkrahússins á Akureyri segir að Ríkisendurskoðun hafi staðfest mikilvægi flugvallar í Reykjavík. Þótt fréttastofa Stöðvar 2 hafi flutt frétt þar sem „var gerð tilraun til þess að draga úr gildi þeirra staðreynda sem Hjartað í Vatnsmýri hefur miðlað til almennings og 65.000 einstaklingar hafa tekuð undir með undirskrift á lending.is blasi við öllum að Ríkisendurskoðun undirstriki málflutning Hjartans í Vatnsmýri.
„Eftir situr algjör samhljómur í staðreyndum Hjartans í Vatnsmýri og svo skýrslu Ríkisendurskoðunar; 5-600 sjúkraflug eru flogin árlega til Reykjavíkur þar sem helmingur telst til bráðatilvika og mínútur geta skilið á milli lífs og dauða,“ segir Sigurður.
-BÞ





