Einn leikur er á dagskrá 1. deildar karla í knattspyrnu í dag og er það viðureign nágrannaliðanna Völsungs og KA. Leikið er á Húsavík og hefjast leikar klukkan 18.00.
Lítið er undir í þessum leik, að þessu sinni, en Völsungar eru þegar fallnir úr 1. deildinni og hefur þeim ekki enn tekist að vinna leik í sumar. Þeir hafa aðeins tvö stig á botni deildarinnar, 16 stigum frá næsta liði.
Draumur gulklæddra KA manna um að komast upp um deild er runninn út í sandinn en þeir eru 9 stigum frá 2. sæti deildarinnar, þegar aðeins þrír leikir eru eftir. KA var lengi vel í dauðafæri á því að blanda sér í alvöru toppbaráttu en slakt gengi liðsins í byrjun ágúst varð þeim að falli.
Það er þó alltaf ástæða til þess að gera sér ferð austur fyrir fjall og sjá skemmtilegan fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 18.00 á Húsavíkurvelli.
-SMS
siguroli@akv.is





