Rektor Háskólans á Akureyri segir að brugðist verði við óánægju meðal starfsmanna Háskólans á Akureyri. Ný könnun sem BHM efndi til sýnir að starfsánægja akureyrskra háskólakennara mælist undir rauðu striki sem þýðir að úrbætur eru taldar brýnar. Félagið er í þriðja neðsta sæti af alls 24 félögum sem svara. Aðeins mælist minni starfsánægja hjá meðlimum Félags fréttamanna og Félagi geislafræðinga.
„Við í HA vinnum stöðugt að því að halda upp eins góðum anda í skólanum og mögulegt er. Við höfum gert okkar eigin kannanir og reynt að bregðast við þeirri gagnrýni sem þar hefur komið fram. Undirrót flestra þeirra gagnrýnisatriða sem við fáum er mikið vinnuálag og lág laun,“ segir Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri.
Hann segir að í stórri könnun SFR sem gerð var í vor hafi mælst batamerki í starfsánægju háskólakennara. „Ég hef óskað eftir fundi með formanni og stjórn félags háskólakennara við HA til að fara yfir könnunina og hvernig HA getur sem best brugðist við.“
Það sem háir HA mest er mikill niðurskurður á fjárveitingum að sögn rektors. „Við höfum valið þá leið að hagræða í rekstri eins mikið og mögulegt er án þess að þurfa grípa til uppsagna. Það boðar því ekki gott ef það á að skerða framlög til háskólastarfsemi enn frekar eins og heyrst hefur. Háskólinn stefnir þó að því að komast í gegnum þessar hremmingar sem sjálfstæður háskóli með eins óskerta starfsemi og mögulegt er,“ segir rektor.
-BÞ





