Heyrst hefur að meintur titringur innan háskólasamfélagsins á Akureyri sé ofmæltur eftir að Ólína Þorvarðardóttir, fyrrum þingmaður Samfylkingar, vann kosningu um stöðu sviðsforseta Hug- og félagsvísindasviðs. Hefur heyrst að rektor sem hefur ráðningarvaldið hafi þegar sent háskólaráði gögn, enda sé samráð lögbundið.Boðaður hefur verið fundur í háskólaráði 12. september og mun þá væntanlega ákvörðun kynnt. Hefur heyrst að allar líkur séu á að Ólína fái djobbið, enda vann hún kosningu við keppinauta sína meðal starfsmanna fræðasviðsins – og gildi þá einu þótt munurinn hafi aðeins verið eitt atkvæði…
Heyrst hefur að stærstu ritstjórnir Íslands hafi glímt við þrálátan orðróm þess efnis að einn valdamesti maður þjóðarinnar eigi von á barni utan hjónabands. Svo rammt hefur kveðið að þessu að spurning á ensku var send inn á erlendan fréttavef nýverið sem fjallaði um valdamanninn. Þar var spurt hvort þetta væri satt. Hefur heyrst að orðrómurinn kunni að vera skipulögð aðför án tilhæfu og marki þá e.t.v. spor sem ný tegund af sóðaskap og undirbeltishöggum í íslenskri stjórnmálaumræðu…





