Hafnarstræti 96 - París. Þessi mynd er tekin 11.febrúar 2007
Í síðustu viku tók ég fyrir Hótel Akureyri eða Hafnarstræti 98 en næsta hús neðan við er annað glæsilegt timburhús, Hafnarstræti 96. Húsið á aldarafmæli í ár en það var reist árið 1913 af kaupmanninum Sigvalda Jóhannessyni.
Húsið er tvílyft timburhús með háu risi og miðjukvisti, skreyttum útskurði í anda norskrar Sveitzer byggingargerðar. Helsta einkenni hússins eru tvímælalaust tveir turnar á göflum framan á húsinu og er húsið með þeim svipmestu í miðbænum. Gluggapóstar eru einnig sérstæðir, margskiptir T-póstar með þríhyrndum skyggnum ofan á.
Sigvaldi nefndi verslun sína París og hefur nafnið fest við húsið. Erlendar höfuðborgir og stórborgir hafa löngum verið vinsælar í nafngiftum húsa á Akureyri. Næsta hús við París er kallað Hamborg, Hafnarstræti 94 (byggt 1909, hvíta húsið til hægri á myndinni). Í Aðalstræti er húsið Berlín og tvö önnur hús í Hafnarstræti voru kölluð Rotterdam og Jerúsalem. Síðasttalin tvö hús eru horfin fyrir mörgum áratugum. Þá hefur höfuðborg Íslands átt sinn fulltrúa hér - en á Oddeyrinni stóð eitt sinn hús sem kallað var Litla-Reykjavík.
Verslunarrekstur hefur verið á neðstu hæð hússins öll þessi 100 ár sem húsið hefur staðið og síðustu 15 árin hefur þarna verið kaffihúsið Bláa Kannan. Blómabúð Akureyrar flutti úr húsinu um 2008 en hún hafði verið þarna áratugum saman. Kjallari var innréttaður sem krá fyrir rúmum áratug síðan og er þar nú hinn víðfrægi tónleikastaður Græni Hatturinn.
Lengi vel var fataverslun á annarri hæð hússins en nú er búið á efri hæðum. Blómabúðin var í suðurhluta neðri hæðar en í nyrðra plássinu var þarna vinsæl leikfangaverslun sem var aldrei kölluð annað en Siggi Gúmm, eftir eigandanum, en getur vel hugsast að hún hafi heitað eitthvað allt annað.
Hafnarstræti 96 er eitt af glæsilegri húsum bæjarins og mikið kennileiti í miðbænum auk þess sem þar er fjölsótt kaffihús og einn af betri tónleikastöðum landsins.
Arnór Bliki Hallmundsson











