Það liggja mikil verðmæti í tæknibúnaði af öllum gerðum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint enda tekin í verslun hér í bænum
Lögreglan á Akureyri hefur upplýst stórfellt svindlmál þar sem Akureyringur á þrítugsaldri hefur haft hundruð þúsunda af almennum borgurum með svikum og prettum. Alls ræðir um 10-12 mál.
Maðurinn hefur þóst eiga ýmis tæki til sölu, síma, tölvur, varahluti, dekk og fleira. Stundum hafa „viðskiptin“ verið auglýst á vefsíðum en stundum hefur maður þekkt mann og gylliboð um ódýr tæki orðið til þess að borgarar hafa lagt fé inn á reikning mannsins án þess að fá nokkru sinni vöruna í hendur. Maðurinn lofaði gjarnan að hann myndi skutlast sjálfur með vöruna til viðtakanda eftir að búið væri að leggja inn á reikning hans. Aldrei virðist um raunverulega söluvöru hafa verið að ræða.
Urður Snædal er í hópi fórnarlamba mannsins. Hún tapaði 35.000 krónum á ætluðum fartölvukaupum og vill hún nota tækifærið til að vara fólk við slíkum svindlurum. Hún segist upplifa mikla skömm að hafa bitið á agnið en datt ekki í hug að svona svik ættu sér stað á Akureyri.
Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri, segir að um öll viðskipti skuli gilda að fólk hitti seljandann augliti til auglitis og sjái vöruna með eigin augum. Sjá nánar bls. 2 í blaði vikunnar.











