Njáll Trausti Friðbertsson skipuleggur myndatöku á Akureyrarflugvelli í dag
Forsvarsmenn Hjarta í Vatnsmýri hafa skipulagt myndatöku á Akureyrarflugvelli klukkan 16 í dag. „Við viljum biðja alla sem hafa tök á að mæta,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson einn af skipuleggjendunum. „Við þyrftum helst að fá 600 manns til að mæta. Biðlum til ykkar að mæta takið endilega fjölskylduna og vinina með og náum góðum myndum sem munu nýtast í undirskriftasöfnuninni,“ segir Njáll og bætir við að tilgangur myndatökunnar sé fyrst og fremst að sýna með táknrænum hætti þann fjölda sem þarf á sjúkraflugi að halda á hverju ári.
Hjartað í Vatnsmýri hefur nú safnað rúmlega 56.500 undirskriftum á vefnum lending.is þar sem skorað er á borgarstjórn og Alþingi að tryggja óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar. Fjöldi undirskrifta er því kominn yfir það sem safnaðist í Icesave málinu en þar námu undirskriftir 56.089.
„Ljóst er því að krafa um óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar er fjölmennasta krafa sem sett hefur verið fram hérlendis. Ekkert eitt mál hefur áður notið jafn víðtæks stuðnings,“ segir í fréttatilkynningu frá hópnum.
Undirskriftasöfnunin verður haldið áfram næstu þrjár vikur.













