Kristján Guðmundsson við búrið sem er nefnt eftir honum
Vélsmiðjan Hamar og Promens á Dalvík hafa gert með sér samkomulag um að Promens kynni og selji svokallað Kristjánsbúr í gegnum alþjóðlegt sölukerfi sitt. Búrið er það fyrsta sinnar tegundar sem hlotið hefur CE vottun og var formlega afhjúpað á Fiskideginum mikla á Dalvík fyrr í þessum mánuði. Promens mun í fyrstu markaðssetja Kristjánsbúrið á Íslandi, í Færeyjum og í Noregi
Nafn sitt dregur búrið af Dalvíkingnum Kristjáni Guðmundssyni, sem slasaðist alvarlega fyrir tveimur árum þegar hann varð undir þungum fiskikerjum við löndun. Við löndun eru fiskikerin sett í búrið áður en þau eru hífð í land og tryggir þannig að kerin geta ekki losnað og fallið niður líkt og gerðist þegar Kristján slasaðist. Kristján, sem náð hefur ótrúlegum bata, hélt við afhjúpunina magnaða ræðu þar sem hann sagði frá slysinu og þeim áhrifum sem það hefur haft á líf hans. Kallaði hann Kristjánsbúrið „bestu uppfinningu allra tíma“ við mikinn fögnuð áheyrenda.
Aukið öryggi og tímasparnaður
Strax eftir slysið á Dalvík setti Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, saman vinnuhóp sem fékk það hlutverk að hanna búnað sem tryggja myndi öryggi starfsmanna við löndun. Í hópnum voru starfsmenn Samherja, löndunarfyrirtækisins Valeska á Dalvík og Hamars ehf.
Þegar farið var að vinna með búrið í prófunarferli kom í ljós, að auk þess að tryggja öryggi starfsmanna við löndun þá fylgdi því einnig hagræðing í tímasparnaði. Við bættist svo að búrið fer betur með fiskikerin og lengir líftíma þeirra. Eftir mikla þróunarvinnu og prófanir var Kristjánsbúrið svo formlega sýnt almenningi í fyrsta sinn á 30 ára afmæli Samherja sem haldið var upp á á Fiskideginum mikla.
Smíðað á Norðurlandi
Kári Pálsson, forstjóri Hamars ehf., segir Kristjánsbúrin smíðuð í vélsmiðju fyrirtækisins á Akureyri. Hann segir verkefnið hafa verið skemmtilega samvinnu margra aðila og að það falli vel að starfsemi fyrirtækisins, þar sem öryggismál séu í forgangi. Hamar ehf. vinnur mikið fyrir sjávarútveginn.
„Hönnun Kristjánsbúrsins gengur út á einfaldleika til að draga úr hættu á bilunum. Við erum nú að ljúka við hönnun á öðru búri sem ætlað er fyrir frystivörur. Það búr er einnig unnið í samstarfi við Samherja enda leggja þeir sig fram við að tryggja öryggi og velferð sinna manna,“ segir Kári.
Byltingarkennd aðferðafræði
Starfsmenn Promens á Dalvík fylgdust með smíði og prófunum Kristjánsbúrsins. Daði Valdimarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir Kristjánsbúrið byltingarkennda aðferðafræði við meðhöndlun á fiskikerjum.
„Sæplast kerin frá Promens eru þekkt fyrir endingu, styrk og öryggi. Undanfarin ár höfum við unnið markvisst að því að endurbæta kerin til að auka öryggi í meðhöndlun þeirra. Samstarfið við Hamar er enn einn áfanginn á þeirri vegferð og kemur til með að efla framleiðslu Promens,“ segir Daði. Hann segir búrið þegar hafa verið tekið í notkun hjá nokkrum viðskiptavinum. Fyrstu viðbrögð séu mjög jákvæð og það hefur spurst út. „Það bíða því margir spennir eftir að prófa búnaðinn.“
Fréttatilkynning




