Eftir að hafa komið saman fram yfir 500 sinnum á síðustu átta árum gefa hjónin Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir loks út sína fyrstu plötu nú í lok ágúst sem nefnist einfaldlega Hjalti og Lára. Rómantíkin svífur yfir vötnum á plötunni sem inniheldur 12 lög, íslensk og erlend. Útgáfunni verður fagnað með útgáfutónleikum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyrarvöku, í kvöld, 30. ágúst. Einnig fara fram útgáfutónleikar á Blönduósi 31. ágúst.
Á plötunni flytja Hjalti og Lára rólegar ballöður í bland við kántrýskotna slagara. Flest laganna hafa þau verið beðin um að flytja við ýmiskonar tilefni og hafa lögin fylgt þeim í gegnum árin. Platan var tekin upp í Hofi á vordögum og inniheldur hún þekktar auk þess sem guðsmennirnir Oddur Bjarni Þorkelsson (Ljótur hálfviti) og Svavar Alfreð Jónsson sömdu nýja íslenska texta við erlend lög.
Hér má hlusta á lag af plötunni






















