Last fær Eining-Iðja fyrir „endalausan skrúðfjaðraleik“ í stað þess að hugsa um það sem mestu máli skiptir; að bæta kjör verkafólks. Svo skrifar ungur Norðlendingur en Eining-Iðja fékk sérstakt lof í síðasta blaði fyrir skipulagningu orlofsferðar. „Einhver myndi bölva og ragna yfir endlausum skrúðfjaðraleik hinna svokölluðu verkalýðsfélaga þegar þau ættu, í stað þess að vera sumarbústaðafélög, að berjast fyrir 1) bættum kjörum sinna skjólstæðinga og 2) að skjólstæðingar raunverulega fái það sem þeir eiga rétt á,“ skrifar Norðlendingurinn og segist reiður.
Lof fær Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fyrir að kynna nýjan hljómsveitarstjóra á fyrstu tónleikum vetrarins á Akureyrarvöku. Svo skrifar lesandi í bréfi til blaðsins. „Vonandi verður framhald á slíku. SN fær einnig lof fyrir að hefja starfsár sitt á Akureyrarvöku. SN fær sömuleiðis lof fyrir mörg samstarfsverkefni á vetri komanda,“ bætir hann við.
Last fær Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fyrir að spila aðeins þrenna sinfóníska tónleika á komandi vetri, segir Akureyringur í öðru bréfi. „Hinir tónleikarnir eru þrennir popp og rokktónleikar og svo kvikmyndasýning, sem varla getur talist tónleikar - hvað þá sinfóníutónleikar, og svo kammertónleikar með örfáum hljóðfæraleikurum sem varla geta talist sinfóníutónleikar heldur. Svo má nefna heimsókn Sinfóníu Færeyja. Á þrennum tónleikum vetrardagskrár Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands spilar hljómsveitin því ekki einn tón. Á öðrum þrem er hljómsveitin í undirleikshlutverki. Eftir standa þrennri tónleikar með sinfónískri tónlist,“ skrifar sá.
Lof fær Veðurstofan fyrir að draga hvergi af sér í aðvörunum vegna illviðris sem spáð hefur verið á Norðurlandi á næstunni. Þetta segir kona sem man vel hvellinn 8. september í fyrra en þá var deilt um hvort nægilega hefði verið varað við. Stórfellir varð þá hjá sauðfjárbændum vegna snjóa…






























