Þór/KA tók á móti botnliði Þróttar í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Rjómablíða var á Þórsvelli, lognið á undan storminum, og litu fimm mörk dagsins ljós. Þau voru öll norðankvenna og lyftu þær sér upp í 5. sæti deildarinnar með þessum sigri.
Það var eins gott að mæta ekki seint á völlinn í kvöld því að Þór/KA var búið að skora fyrsta mark leiksins innan tveggja mínútna. Var þar að verki Thanai Lauren Annis. Það var greinilegt að Norðanstúlkur ætluðu ekki að láta ósigurinn í bikarúrslitunum frá liðinni helgi, á sig fá. Markaskorarinn mikli, Katrín Ásbjörnsdóttir, tvöfaldaði forystu Þór/KA á 41. mínútu leiksins og staðan 2-0 í hálfleik.
Thanai Lauren Annis var aftur á skotskónnum í upphafi síðari hálfleiks þegar hún skoraði þriðja mark Þór/KA. Þá var komið að þætti Kötlu Rakelardóttur en hún skoraði síðustu tvö mörk Þór/KA í leiknum og 5-0 sigur staðreynd. Flottur sigur hjá stelpunum sem rifu sig upp eftir svekkjandi tap í bikarúrslitum á dögunum.
-SMS
siguroli@akv.is
Myndir: Sævar Sigurjónsson













