Þór og Keflavík þurftu að sættast á skiptan hlut er liðin áttust við í 20. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í dag. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Þórsarar jöfnuðu metin á síðustu mínútum leiksins. Það var Mark Tubæk sem var hetja Þórs en hann skoraði annað mark þeirra úr vítaspyrnu.
Þórsarar hófu leikinn af miklum krafti og spiluðu fyrri hálfleikinn vel. Chukwudi Chijindu skoraði fyrsta mark leiksins á 16. mínútu eftir sendingu frá hinum unga og efnilega Orra Sigurjónssyni. Chuck fékk frábært tækifæri til þess að tvöfalda forystu heimamanna á 21. mínútu en þá brást honum bogalistinn af vítapunktinum. Eftir að Þórsarar klúðruðu vítaspyrnunni fóru lærisveinar Kristjáns Guðmundssonar að sækja í sig veðrið og uppskáru mark á 43. mínútu. Það mark gerði Bojan Stefan Ljubicic. Staðan var því 1-1 er liðin gengu til búningsherbergja.
Mikil barátta einkenndi leikinn og voru það Suðurnesjapiltar sem voru aðgangsharðari í upphafi síðari hálfleiks. Á 82. mínútu skoraði fyrrum atvinnumaðurinn Jóhann Birnir Guðmundsson annað mark Keflvíkinga og virtist allt stefna í sigur þeirra. Á 86. mínútu fengu heimamenn hinsvegar sína aðra vítaspyrnu í leiknum og úr henni skoraði Mark Tubæk og þar við sat. Bæði lið fá eitt stig og eru það sennilega sanngjörn úrslit ef á heildina er litið.
Á sama tíma vann Víkingur Ólafsvík stórsigur á ÍA, 5-0 og eru Skagamenn því fallnir. Fimm lið geta lent í 11. sæti þegar tvær umferðir eru eftir en í því sæti sitja nú Víkingar með 17 stig en Þór hefur 18 stig í 10. sæti. Þór á eftir að spila við ÍA og hafa Skagamenn að engu að keppa. Í síðustu umferðinni leika Þórsarar svo við ÍBV. Víkingur á eftir að leika gegn Val og Fylki.
Myndir: Sævar Sigurjónsson
:
-SMS
siguroli@akv.is
