Andstæður í Ketilhúsinu

Andstæður í Ketilhúsinu

Ragnheiður, Bjarni og Jón Óskar í Ketilhúsinu

Í dag kl. 15 opnar í Ketilhúsi sýning þriggja listamanna, þeirra Bjarna Sigurbjörnssonar, Jóns Óskars og Ragnheiðar Guðmundsdóttur. Blaðamaður lagði leið sína í Ketilhúsið stuttu fyrir opnun og spjallaði við Ragnheiði um hennar hluta af sýningunni sem nefnist Elska ég mig samt?

„Sýningin mín er tileinkuð konum. Formæðrum mínum, konunum í lífi mínu og öðrum konum. Ég er að fjalla um þau sár og ör sem við allar berum eftir gönguna í gegnum lífið og sem berast á milli okkar í gegnum tengsl okkar og hvernig fyrirgefningin er lykillinn að heiluninni,“ segir Ragnheiður.

Elska ég mig samt?
„Ég hef lengi velt því fyrir mér hvað það þýðir að elska sig sjálfa. Raunverulega; ekki bara að segja það heldur virkilega finna það. Hvers vegna höfnum við okkur stöðugt, finnst við vera ófullkomnar og ekki nógu góðar? Erum við ekki fullkomnar núna eins og við erum? Eftir hverju erum við alltaf að bíða? Ef við getum elskað okkur núna, sama hvað á gengur, verðum við frjálsar.“

Amma mín fyrirmynd
Ragnheiður rekur ættir sínar norður en móðuramma hennar og afi, Herdís og Ingólfur, bjuggu að Fornhaga í Hörgárdal og þaðan á hún margar góðar minningar og sótti innblástur til ömmu sinnar. „Hún var svo sjálfstæð og sterk kona, um tvítugt fór hún ein til Noregs í garðyrkjuskóla og hún starfaði við blómaræktun allt sitt líf. Hún var ein af þessum konum sem stóð með sjálfri sér og því sem hún vildi. Mér hefur sérstaklega mikið verið hugsað til hennar þegar ég var að vinna verkin við þessa sýningu, hún er mér svo mikil fyrirmynd.“

List og heilsa
Ragnheiður er menntaður textílhönnuður frá Listaháskóla Íslands og hefur mikið velt fyrir sér áferð efna og þróað hugmyndir sínar með blandaðri tækni sem liggur á mörkum textíls og málverks. Þessi þróunarvinna leiddi til djúprar íhugunar um efnisgerð og var niðurstaðan sú að efnið væri sjálfstæð eigind sem hægt væri að meðtaka sem myndlist á fagurfræðilegum forsendum. Ragnheiður hefur mikinn áhuga á náttúrulækningum og stundaði nám í þeim fræðum um tíma. Vangaveltur hennar um hlutverk listamannsins, sem og hvers vegna og hvernig við lifum, rann síðar saman við áhuga hennar á heilsu og andlegum fræðum. Útkoman er myndlist þar sem skrifaður texti hverfur undir yfirborð efnanna í vinnsluferlinu og viðfangið brýst fram í formi vefja, bývaxs, útsaums og rifinna grisja. „Þetta eru lífsins ör og sár sem gefa til kynna sorgina, sársaukann og gleðina sem fylgir því að yfirvinna andstreymið,“ segir Ragnheiður. Í verkunum er einnig stundum að finna möntrur sem kyrjaðar eru í sköpunarferlinu.

Tvær ólíkar sýningar
Sýning Ragnheiðar er á efri hæð Ketilhússins en á neðri hæðinni sýna myndlistarmennirnir Bjarni og Jón Óskar verk sem virka mikil andstæða við verk Ragnheiðar. Sýning þeirra, sem samanstendur af verkum sem máluð eru á stóra fleka, er kraftmikil og stórkallaleg. Sýningarnar fara þó einkennilega vel saman.

-SBS

Sérstaða Íslands á sviði upplýsinga- og tjáningafrelsis

Á lögfræðitorgi við Háskólann á Akureyri á morgun, þriðjudaginn 24. september, kl. 12.00 í stofu L102 ræðir Aðalheiður Ámundadóttir um sérstöðu Íslands á sviði upplýsinga- og ... Lesa »

Októberfest á Akureyri

Föstudaginn 27. og laugardaginn 28. september verður haldin Októberfest á Akureyri en það er Akureyri Backpackers sem stendur fyrir henni. „Við ætlum að taka Októberfest á Akureyri upp á hærra plan!,“ ... Lesa »

Þór áfram í deild þeirra bestu eftir sigur á ÍA

Þór tók á móti ÍA í gríðarlega mikilvægum leik í næst síðustu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Þórsvelli og voru það heimamenn sem stóðu uppi sem sigurvegarar að leik ... Lesa »

Olís selur metan fyrir Norðurorku

Norðurorka hefur nú skrifað undir samstarfssamning við OLÍS um sölu og markaðssetningu á því metani sem framleitt verður úr hauggasi úr gömlu sorphaugunum á Glerárdal við Akureyri. „Það hefur ... Lesa »

Maturinn 2013 í Íþróttahöllinni

Sýningin MATUR-INN 2013 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 11. og 12. október næstkomandi. Það er félagið Matur úr Eyjafirði - Local food sem heldur utan um sýninguna en hún er stærsti ... Lesa »

Aukin þjónusta strætó í Eyjafjarðarsveit

Almenningi er boðið að ferðast með skólabílum að Hrafnagilsskóla á morgnana en þaðan er svo strætóferð til Akureyrar kl. 7:45 sem stöðvar m.a. við Skautahöllina, VMA og MA. Á seinasta ... Lesa »

Þórsarar fögnuðu sigri í dag - myndband

Þór sigraði ÍA 1-0 í dag og tryggðu sér því sæti í Pepsí-deildinni á næsta ári. Þórsarar voru að vonum afskaplega ánægðir með með úrslitin og fögnuðu vel eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem ... Lesa »

Allir tapa

Við höfum öll gert heimskulega hluti. Og þótt við sem erum eldri en tvævetur hefðum viljað hafa aðgang að google og wikipedia í stað rykfallinna alfræðiorðabóka þá þökkum við oft fyrir að unglingsár ... Lesa »

MA-húsið – menningarlegt og byggingarlegt stórvirki

Í bókinni Lifandi húsið sem kemur út í haust á vegum Völuspár er leitast við að segja sögu gamla skólahúss Menntaskólans á Akureyri í myndum. Í formála bókarinnar segir að í fyrsta lagi sé húsið með ... Lesa »

Metaðsókn í Leiklist

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar hefst á morgun, mánudaginn 23. september. Aldrei hafa jafn margar umsóknir, eða 75 talsins, borist skólanum og þurfti að bæta við hópum til að allir gætu fengið ... Lesa »

Óboðleg tillaga

Nú styttist í að deiliskipulag af tjaldsvæðunum á Hömrum og útvistarsvæðinu í Kjarnaskógi líti dagins ljós og fari í auglýsingu. Yfir þessi svæði liggja þrjár háspennulínur og teygja þær sig um ... Lesa »

Bíllaus dagur

Evrópsk samgönguvika er haldin 16.-22. september ár hvert og nú í annað skiptið tekur Akureyri þátt. Af því tilefni er bíllaus dagur á Akureyri í dag og í tengslum við það verður boðið upp á ... Lesa »

Þór mætir ÍA í gríðarlega mikilvægum leik í dag

Ef að einhvertíman hefur verið ástæða til þess að flykkjast á völlinn og fjölmenna á bakvið knattspyrnulið sitt, þá er það í dag. Þór leikur gegn ÍA í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Leikið er á ... Lesa »

Gengur illa að fá spilaða harmonikkutónlist

Aðalsteinn Ísfjörð sem vakið hefur athygli landsfjölmiðla fyrir geisladisk sem hann gaf út nýverið, segir erfitt að fá útvarpsfólk til að spila harmonikkutónlist núorðið. Geisladiskur Húsvíkingsins, ... Lesa »

Svekkjandi tap hjá KA/Þór í fyrsta leik

Lið KA/Þór hóf leik í dag í Olís-deild kvenna, á nýjan leik eftir eins árs fjarveru. Þær léku gegn Selfossi á Selfossi og þurftu að lúta í gras, 24-25, eftir spennandi viðureign. Olís-deildin er rétt ... Lesa »

KA tapaði í síðustu umferð - 6. sætið niðurstaðan

KA lék gegn Grindavík í síðustu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í dag og þurfti að láta í minni pokann. Leikið var á Grindavíkurvelli og var niðurstaðan 2-1 fyrir heimamenn. Grindvíkingar áttu ... Lesa »

Norðlenskir listamenn takast á fyrir dómi

Myndlistarmaðurinn Ásmundur Ásmundsson hefur farið í mál við myndlistarmanninn Kristinn E. Hrafnsson vegna orða sem sá síðarnefndi lét falla í grein í Morgunblaðinu. Frá þessu segir á dv.is. Ásmundur ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að Íslandsstofa hafi sett verulega niður með fyrirhuguðu átaki sínu um að landsmenn sendi inn upplýsingar um leynistaði í íslenskri náttúru og víðar svo erlendir ferðamenn fái notið. ... Lesa »

Kjúklingasúpa

Þessi er algert æði og tekur enga stund. Frábær, fljótlegur kvöldmatur. Uppskriftin nægir fyrir 4-5 ef þú notar kjúkling, fyrir 4 ef þú gerir grænmetissúpu (sjá neðar). Kjúklingasúpa 2 msk ... Lesa »

Vann risaráðstefnu á hlutkesti!

Hlutkesti var varpað til að fá úr því skorið hvort fjölmenn alþjóðleg ráðstefna um byggðamál færi fram í Danmörku eða á Akureyri. Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskólann á Alureyri og ... Lesa »

Enn er mengað skolvatn losað í Glerá

Á steypustöðinni Möl og sandi, sem staðsett er við Súluveg á Akureyri, hefur í mörg ár skolvatni úr steypubílum verið dælt beint út í Glerá en það er skýrt brot á starfsleyfi fyrirtækisins. Samkvæmt ... Lesa »

Andstæður í Ketilhúsinu

Í dag kl. 15 opnar í Ketilhúsi sýning þriggja listamanna, þeirra Bjarna Sigurbjörnssonar, Jóns Óskars og Ragnheiðar Guðmundsdóttur. Blaðamaður lagði leið sína í Ketilhúsið stuttu fyrir opnun og ... Lesa »

Enn um hjörtu

Í síðasta tölublaði Akureyri Vikublaðs skrifar Pétur Snæbjörnsson grein undir yfirskriftinni „Hjartað slær á landsbyggðinni“. Í þeirri grein kemst Pétur að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurflugvöllur ... Lesa »

Eigum ekki annað en vond stjórnvöld sameiginleg með Grikkjum

Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi telur að margt í umræðunni um Evrópusambandið einkennist af hræðsluáróðri. Þetta kom fram í þingræðu sem Brynhildur flutti á ... Lesa »

Framsækin nútímatónlist

NeoN tríó heldur tónleika með framsækinni og skemmtilegri nútímatónlist í Hofi á Akureyri í dag, föstudaginn 20. september kl. 18:00. Ókeypis er inn og allir velkomnir. NeoN trio er skipað ... Lesa »

Skoða meira