Á steypustöðinni Möl og sandi, sem staðsett er við Súluveg á Akureyri, hefur í mörg ár skolvatni úr steypubílum verið dælt beint út í Glerá en það er skýrt brot á starfsleyfi fyrirtækisins. Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, sem gefur starfsleyfið út og á að sinna eftirliti gagnvart fyrirtækinu, hefur stofnunin séð í gegnum fingur sér vegna brotanna vegna þess að skipulag Akureyrarbæjar hefur gert ráð fyrir að steypustöðin víki af núverandi stað en óljóst hefur verið hvenær það yrði.
Þanni þriðja maí sl. var mengunin frá steypustöðinni vel sýnileg vegna litaðrar steypu sem skolað var í ána.
Í ársbyrjun 2013 gáfu skipulagsyfirvöld steypustöðinni leyfi til starfsemi á núverandi stað til ársins 2016 en þegar það varð ljóst sendi heilbrigðiseftirlitið fyrirtækinu bréf þar sem gerðar voru kröfur um tillögur að úrbótum vegna losunar á affallsvatni en steypustöðin hefur ekki svarað því bréfi, sem sent var í febrúar sl. María Markúsdóttir, starfsmaður heilbrigðiseftirlitsins segir að í bréfinu hafi ekki verið gefinn ákveðinn frestur til svars en nú verði farið í að reka eftir svörum.
„Frá okkar hálfu er ekki ásættanlegt að þeir haldi áfram að setja úrgang út í Glerá næstu þrjú árin,“ segir María í samtali við blaðamann og bætir því við að sóðaskapur sem þessi hjá iðnaðarfyrirtæki sé tímaskekkja og eigi alls ekki að sjást, „þetta hefur verið látið rúlla svona allt of lengi.“
Með bréfi heilbrigðiseftirlitsins er málið komið í ákveðið ferli og ef steypustöðin sinnir því ekki fer af stað áminningarferli sem getur endað með lokun fyrirtækisins. Slíkt ferli getur tekið frá tveimur mánuðum. „Þeir munu þurfa að gera eitthvað í þessu, annað verður ekki samþykkt af okkar hálfu,“ segir María.
Fólk hefur velt því fyrir sér hversu mikið mengunin skaði lífríki árinnar. Það hefur ekki verið rannsakað og segist María ekki geta fullyrt neitt um áhrif íblöndunarefna sem notuð eru í steypuna eða áhrif mengunar frá steypunni sjálfri. „Steypan harðnar og botnfellur þó hún skolist að mestu burt þá endar hún auðvitað einhversstaðar. Þetta hefur að sjálfsögðu áhrif á botninn í ánni og það sjást útfellingar á árbakkanum. Þetta er iðnaðarúrgangur og losun slíks úrgangs í vatn er einfaldlega ekki heimil samkvæmt lögum“
-SBS
- Þanni þriðja maí sl. var mengunin frá steypustöðinni vel sýnileg vegna litaðrar steypu sem skolað var í ána.
- Enn dælir steypustöðin Möl og Sandur skolvatni úr steypubílum sínum beint í Glerá.
- Myndin sýnir vel steypukökurnar sem myndast hafa í gegnum tíðna á árbakkanum við steypustöðina.
- Glerá er Akureyringum kær, og mörgum sárnar að vatnsgæðum hennar og dýralífi sé fórnað fyrir hagsmuni fyrirtækja í bænum.
- Þanni þriðja maí sl. varð mengunin frá steypustöðinni sýnileg vegna litaðrar steypu sem skolað var í ána.
