Hlutkesti var varpað til að fá úr því skorið hvort fjölmenn alþjóðleg ráðstefna um byggðamál færi fram í Danmörku eða á Akureyri. Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskólann á Alureyri og stjórnarformaður Byggðastofnunar, sótti ráðstefnu í Kaupmannahöfn þar sem m.a. átti að ákveða hvar Norræna byggðaráðstefnan 2016 skyldi haldin. Til að gera langa sögu stuttu endaði sú ákvörðun með því að varpað var hlutkesti, danskri mynt. Upp kom sú hlið peningsins sem var Íslandi hliðholl. Nánar tiltekið völdu Danirnir hlið Margrétar Þórhildar drottningar á tíkallinum og töpuðu!
Akureyri vikublað náði tali af Þóroddi í morgun þar sem hann var að fara í flug frá Danmörku til Íslands, boðberi góðra tíðinda. Sagðist hann kampakátur með niðurstöðuna, enda miklir hagsmunir í húfi.
-BÞ
