Myndlistarmaðurinn Ásmundur Ásmundsson hefur farið í mál við myndlistarmanninn Kristinn E. Hrafnsson vegna orða sem sá síðarnefndi lét falla í grein í Morgunblaðinu. Frá þessu segir á dv.is. Ásmundur hefur farið fram á milljón í miskabætur en málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Málavextir eru þeir að Ásmundur og Kristinn áttu í ritdeilum í kjölfar ráðningar nýs rektors Listaháskóla Íslands. Í grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 8. maí sl. segir Kristinn um Ásmund að hann sé „kunnastur fyrir að eyðileggja listaverk annarra listamanna.“ og hefur Ásmundur krafist einnar milljónar í miskabætur og þess að ummælin verði dæmd dauð og ómerk. Vísar Kristinn þar til verks sem bar nafnið Fallegasta bók í heimi og sýnt var á sýningunni Koddu sem fram fór í Nýlistasafninu 2011 en Ásmundur er einn af þremur höfundum verksins sem gekk út á að eitt eintak af bók Eggerts Péturssonar, Flora Islandica, var mökuð út í matarleyfum. Verkið vakti miklar deilur og var sýningunni lokað fyrr en áætlað hafði verið en miklar umræður urðu um höfundarrétt og breytingar (e. remix) á verkum annarra.
Ásmundur Ásmundsson er fæddur og uppalinn á Akureyri og stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri. Hann hefur víða haldið sýningar, m.a. tók hann þátt í samsýningunni Losti 2000 í Listasafninu á Akureyri. Ásmundur var tilnefndur til Sjónlistarorðunnar 2012
Kristinn E. Hrafnsson fæddist í Ólafsfirði og stundaði einnig nám við Myndlistarskólann á Akureyri. Verk eftir hann má sjá víða á Akureyri t.d. Íslandsklukkuna sem stendur við Háskólann á Akureyri og annað verk sem greypt er í stéttina fyrir framan menningarhúsið Hof. Kristinn hélt einkasýningu á Listasafninu á Akureyri snemma árs 2012.
-SBS
