NeoN tríó heldur tónleika með framsækinni og skemmtilegri nútímatónlist í Hofi á Akureyri í dag, föstudaginn 20. september kl. 18:00. Ókeypis er inn og allir velkomnir.
NeoN trio er skipað flautuleikara, klarinettleikara og slagverksleikara úr norsku kammersveitinni Ensemble neoN. Kammersveitin samanstendur af níu hljóðfæraleikurum, einum stjórnanda og tveimur tónskáldum. Sveitin kom fyrst fram á sjónarsviðið á tónlistarhátíðinni Ultima festival í Osló árið 2009 og hefur allar götur síðan getið sér gott orð fyrir að vera spennandi og framsækinn hópur ungs tónlistarfólks. Ein megináhersla Ensemble neoN er að krydda sígilda samtímatónlist með hljóðheimi popptónlistarinnar, en sveitin leggur einnig áherslu á samstarf við sjónlistamenn og sviðslistamenn úr öðrum greinum.
-BÞ
