Smá meira tilfinningaklám!

Smá meira tilfinningaklám!

Þorkell Ásgeir Jóhannsson

Senn líður að lokun undirskriftarsöfnunar á vefsíðunni lending.is, þar sem skrifað er undir kröfu um að landsmenn fái að halda óskertri flugstarfsemi í Vatnsmýrinni um ókomna tíð. Tilefnið er sú ætlan borgaryfirvalda að svipta okkur þessari perlu sem Reykjavíkurflugvöllur er, sbr. nýtt aðalskipulag borgarinnar sem nú er í auglýsingaferli. Þar með rofnar sú tenging við alla kjarna stjórnsýslu, menningar og heilbrigðisþjónustu, sem flugvöllurinn hefur veitt okkur og gert kleift að sækja hvaðanæva af landinu með stuttum fyrirvara og jafnvel skila okkur heim aftur samdægurs.

Þetta hefur sérstaka þýðingu fyrir sjúkraflugsþjónustuna sem sér til þess að þeir sem verða fyrir því óláni að veikjast illa eða slasast fjarri borginni, komist til þeirrar sértæku læknismeðferðar sem á þarf að halda, í tæka tíð. Og þar sem þessi þáttur í umræðunni, sjúkraflugið, er sá hverfipunktur sem engin fjárhagsleg rök vinna á, þá hafa flugvallarandstæðingar tekið sig til og ráðist að einmitt þessum þætti.

Tökum nokkur dæmi:

„Sjúkraflugsþjónustan eru þröngir sérhagsmunir“ (samtökin um Betri Byggð).
„Það er ábyrgðalaust og siðferðilega rangt að flytja sjúklinga í vængjuðu flugi. Alla bráðveika sjúklinga á að flytja með þyrlum“. (Fjölmargar blaðagreinar Arnar Sigurðssonar og Gunnars H. Gunnarssonar. Á þessu byggist sú „röksemd“ að engin þörf sé á flugvelli í borginni vegna sjúkraflugs, heldur aðeins þyrlupöllum við spítalana).

„Í langflestum tilfellum er engin hætta á ferðum fyrir sjúkling þótt ferðatíminn lengist, m.a. ef krækja þarf með sjúkraflugi til Keflavíkur“. (Áðurnefnd samtök oftsinnis, ásamt Degi B. Eggertssyni en hann lét þessi orð falla á ráðstefnu HR þ. 19 janúar 2012).

„Aðeins er þörf á að viðhafa flýti fyrir fyrstu aðkomu á vettvang slysa eða bráðra veikinda, en eftir fyrstu umönnun þar liggur ekkert á“. (Samtök um B.B. enn og aftur og einnig Dagur B. Eggrtsson á sömu ráðstefnu og nefnd var hér að ofan).

„Það hefur aldrei verið sannað að nálægð flugvallarins við sjúkrahús bjargi mannslífum“ (Dagur B. Eggertsson á kynningarfundi um nýtt aðalskipulag Reykjavíkur þ. 30 maí s.l.).

„…en málið er bara það að fyrir Reykjavík, þá er mjög mikilvægt að þétta borgina. Og þetta er ofboðslega mikilvægur hluti í því og eiginlega órjúfanlegur hluti þess að Reykjavík verði þétt og góð borg“ (Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2, 26.8. s.l., eftir að hafa sagst skilja áhyggjur fólks vegna sjúkraflugsins, en þetta sýnir glöggt afstöðu hans til lífs og lima landsbyggðarfólks).

Þór Saari telur að séð í stóru samhengi þurfi að ræða þetta mál og leysa „af skynsemi en ekki með svona vitleysistali um einstaka flutninga á fólki“ (Færsla á fésbók 19.8 s.l. en hér er átt við það þegar einstök dæmi hafa verið nefnd í auglýsingum og umræðum á fésbók um sjúkraflug, þar sem nánd flugvallarins við LSH varð ótvírætt til lífsbjargar).

Fréttastofa Stöðvar 2 lagði svo nokkuð til málanna þ. 2. 9. s.l. þegar stuðst var við þessa tilvitnun í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjúkraflug, sem kom út þá um daginn: „Mikilvægt er að hafa í huga að þó mínútur geti skipt sköpum í sjúkraflutningum hefur aðbúnaður sjúklinga og aðstaða lækna, sjúkraflutningamanna og aðstandenda veruleg áhrif.“ (skáletrun mín). Með þessari klausu taldi fréttastofan sannað að framburður okkar sem stöndum að undirskriftasöfnuninni, um að mínútur geti skipt sköpum í sjúkraflugi, væri rangur sbr. fyrirsögn fréttarinnar: „Ósamræmi er í málflutningi talsmanna flugvallarins í Vatnsmýri ef litið er til nýútkominnar skýrslu ríkisendurskoðunar um sjúkraflug.“

Þá er landsmönnum vel kunnugt um það uppnefni sem umfjöllun okkar um sjúkraflug og einstök dæmi þar um hefur fengið, „tilfinningaklám“, en vandséð er hvernig hægt er að fjalla um björgun mannslífa og heilsu fólks án þess að sú umræða höfði til tilfinninga.

Egill Helgason leggst á þessa sömu sveif þegar hann segir að umfjöllun á þessum nótum sé „á mörkum hins smekklega“.
Loks hefur jaðrað við að niðrandi tal um sjúkraflugið, þar sem allir ofangreindir og fleiri til (t.d. Pétur Snæbjörnsson hótelhaldari í Mývatnssveit) ganga beinlínis svo langt að hagræða staðreyndum þar um máli sínu til framdráttar, sé komið út á þann hála ís að rakka niður þá framkvæmdaaðila sem sinnt hafa þessari þjónustu.

Við sem að þessari söfnun stöndum höfum séð ástæðu til að greina frá mikilvægi flugvallarins fyrir sjúkraflugið og höfum nefnt einstök dæmi því til stuðnings, en þar erum við eingöngu að greina frá ísköldum staðreyndum, þetta eru eingöngu sannar reynslusögur sem fram hafa komið. Þær eru margar fleiri. Það þótt andstæðingum flugvallarins finnist þær ósmekklegar breytir engu um mikilvægi þeirra. Það þótt þessir sömu aðila telji sig geta fundið að framkvæmd sjúkraflugsþjónustunnar breytir heldur engu um að okkur liggur alltaf jafn mikið á með sjúklinga í bráðaflutningum, jafnt á lokasprettinum sem í öðrum hlutum flutningsleiðarinnar.

Ég árétta hér með einn mikilvægan þátt í þessu samhengi öllu; Allan þann tíma sem við hjá Mýflugi höfum starfrækt sjúkraflugsþjónustuna á landsvísu höfum við aldrei þurft að snúa frá Reykjavíkurflugvelli vegna veðurs. Svo vel er hann staðsettur og gerður úr garði t.d. með sínum þremur flugbrautum, að ef við á annað borð höfum getað sinnt útköllum vegna aðstæðna á viðkomustöðum okkar annars staðar á landinu, þá höfum við undantekningarlaust getað lokið þeim útköllum í Reykjavík. Þetta hefur reynst ómetanlegt.

Það áréttast hér með einnig að þyrlur eru frábær björgunartæki en fráleit flutningstæki í reglubundnu sjúkraflugi yfir hálendi Íslands. Um ástæður þess má m.a. lesa á lending.is.

Einnig er sú staðreynd mikilvæg í umræðunni, en illa afbökuð af andstæðingum okkar, að sérhæfð og dýr þjónusta á ýmsum sviðum, s.s. hjartaþræðingar, meðferð heilablæðinga og gjörgæsla nýbura, verður ekki veitt á dreifðum fjórðungssjúkrahúsum landsins. Hún getur aðeins verið í boði á einum stað hjá svo fámennri þjóð eins og okkur. Sérhæfing þessara þátta er svo mikil, tækjabúnaðurinn svo dýr og mannauðurinn í þessum störfum takmarkaður auk þess sem þörf er á þeirri reynslu og kunnáttu sem aðeins fæst viðhaldið með því að þjónustan sé höfð svona miðlæg. Af útköllum Mýflugs eru einmitt hjartatilfellin langalgengust, þá heilablæðingar og meðgöngu- og nýburavandamál.

Þessi öfgakenndu viðbrögð flugvallarandstæðinga og forherðingin sem sjá má í viðhorfum borgaryfirvalda æpir á að allir stuðningsmenn flugvallarins sem enn eiga eftir að skrifa undir á lending.is, geri það nú þessa fáu daga sem enn eru til stefnu. Við munum skila þessum undirskriftum til viðtakenda næsta föstudag, þ. 20 september. Takk þið öll sem hafið skrifað undir nú þegar.

Þorkell Ásgeir Jóhannsson
Höfundur er flugstjóri hjá Mýflugi og stjórnarmaður í Hjartanu í Vatnsmýri.

Októberfest á Akureyri

Föstudaginn 27. og laugardaginn 28. september verður haldin Októberfest á Akureyri en það er Akureyri Backpackers sem stendur fyrir henni. „Við ætlum að taka Októberfest á Akureyri upp á hærra plan!,“ ... Lesa »

Þór áfram í deild þeirra bestu eftir sigur á ÍA

Þór tók á móti ÍA í gríðarlega mikilvægum leik í næst síðustu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Þórsvelli og voru það heimamenn sem stóðu uppi sem sigurvegarar að leik ... Lesa »

Olís selur metan fyrir Norðurorku

Norðurorka hefur nú skrifað undir samstarfssamning við OLÍS um sölu og markaðssetningu á því metani sem framleitt verður úr hauggasi úr gömlu sorphaugunum á Glerárdal við Akureyri. „Það hefur ... Lesa »

Maturinn 2013 í Íþróttahöllinni

Sýningin MATUR-INN 2013 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 11. og 12. október næstkomandi. Það er félagið Matur úr Eyjafirði - Local food sem heldur utan um sýninguna en hún er stærsti ... Lesa »

Aukin þjónusta strætó í Eyjafjarðarsveit

Almenningi er boðið að ferðast með skólabílum að Hrafnagilsskóla á morgnana en þaðan er svo strætóferð til Akureyrar kl. 7:45 sem stöðvar m.a. við Skautahöllina, VMA og MA. Á seinasta ... Lesa »

Þórsarar fögnuðu sigri í dag - myndband

Þór sigraði ÍA 1-0 í dag og tryggðu sér því sæti í Pepsí-deildinni á næsta ári. Þórsarar voru að vonum afskaplega ánægðir með með úrslitin og fögnuðu vel eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem ... Lesa »

Allir tapa

Við höfum öll gert heimskulega hluti. Og þótt við sem erum eldri en tvævetur hefðum viljað hafa aðgang að google og wikipedia í stað rykfallinna alfræðiorðabóka þá þökkum við oft fyrir að unglingsár ... Lesa »

MA-húsið – menningarlegt og byggingarlegt stórvirki

Í bókinni Lifandi húsið sem kemur út í haust á vegum Völuspár er leitast við að segja sögu gamla skólahúss Menntaskólans á Akureyri í myndum. Í formála bókarinnar segir að í fyrsta lagi sé húsið með ... Lesa »

Metaðsókn í Leiklist

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar hefst á morgun, mánudaginn 23. september. Aldrei hafa jafn margar umsóknir, eða 75 talsins, borist skólanum og þurfti að bæta við hópum til að allir gætu fengið ... Lesa »

Óboðleg tillaga

Nú styttist í að deiliskipulag af tjaldsvæðunum á Hömrum og útvistarsvæðinu í Kjarnaskógi líti dagins ljós og fari í auglýsingu. Yfir þessi svæði liggja þrjár háspennulínur og teygja þær sig um ... Lesa »

Bíllaus dagur

Evrópsk samgönguvika er haldin 16.-22. september ár hvert og nú í annað skiptið tekur Akureyri þátt. Af því tilefni er bíllaus dagur á Akureyri í dag og í tengslum við það verður boðið upp á ... Lesa »

Þór mætir ÍA í gríðarlega mikilvægum leik í dag

Ef að einhvertíman hefur verið ástæða til þess að flykkjast á völlinn og fjölmenna á bakvið knattspyrnulið sitt, þá er það í dag. Þór leikur gegn ÍA í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Leikið er á ... Lesa »

Gengur illa að fá spilaða harmonikkutónlist

Aðalsteinn Ísfjörð sem vakið hefur athygli landsfjölmiðla fyrir geisladisk sem hann gaf út nýverið, segir erfitt að fá útvarpsfólk til að spila harmonikkutónlist núorðið. Geisladiskur Húsvíkingsins, ... Lesa »

Svekkjandi tap hjá KA/Þór í fyrsta leik

Lið KA/Þór hóf leik í dag í Olís-deild kvenna, á nýjan leik eftir eins árs fjarveru. Þær léku gegn Selfossi á Selfossi og þurftu að lúta í gras, 24-25, eftir spennandi viðureign. Olís-deildin er rétt ... Lesa »

KA tapaði í síðustu umferð - 6. sætið niðurstaðan

KA lék gegn Grindavík í síðustu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í dag og þurfti að láta í minni pokann. Leikið var á Grindavíkurvelli og var niðurstaðan 2-1 fyrir heimamenn. Grindvíkingar áttu ... Lesa »

Norðlenskir listamenn takast á fyrir dómi

Myndlistarmaðurinn Ásmundur Ásmundsson hefur farið í mál við myndlistarmanninn Kristinn E. Hrafnsson vegna orða sem sá síðarnefndi lét falla í grein í Morgunblaðinu. Frá þessu segir á dv.is. Ásmundur ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að Íslandsstofa hafi sett verulega niður með fyrirhuguðu átaki sínu um að landsmenn sendi inn upplýsingar um leynistaði í íslenskri náttúru og víðar svo erlendir ferðamenn fái notið. ... Lesa »

Kjúklingasúpa

Þessi er algert æði og tekur enga stund. Frábær, fljótlegur kvöldmatur. Uppskriftin nægir fyrir 4-5 ef þú notar kjúkling, fyrir 4 ef þú gerir grænmetissúpu (sjá neðar). Kjúklingasúpa 2 msk ... Lesa »

Vann risaráðstefnu á hlutkesti!

Hlutkesti var varpað til að fá úr því skorið hvort fjölmenn alþjóðleg ráðstefna um byggðamál færi fram í Danmörku eða á Akureyri. Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskólann á Alureyri og ... Lesa »

Enn er mengað skolvatn losað í Glerá

Á steypustöðinni Möl og sandi, sem staðsett er við Súluveg á Akureyri, hefur í mörg ár skolvatni úr steypubílum verið dælt beint út í Glerá en það er skýrt brot á starfsleyfi fyrirtækisins. Samkvæmt ... Lesa »

Andstæður í Ketilhúsinu

Í dag kl. 15 opnar í Ketilhúsi sýning þriggja listamanna, þeirra Bjarna Sigurbjörnssonar, Jóns Óskars og Ragnheiðar Guðmundsdóttur. Blaðamaður lagði leið sína í Ketilhúsið stuttu fyrir opnun og ... Lesa »

Enn um hjörtu

Í síðasta tölublaði Akureyri Vikublaðs skrifar Pétur Snæbjörnsson grein undir yfirskriftinni „Hjartað slær á landsbyggðinni“. Í þeirri grein kemst Pétur að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurflugvöllur ... Lesa »

Eigum ekki annað en vond stjórnvöld sameiginleg með Grikkjum

Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi telur að margt í umræðunni um Evrópusambandið einkennist af hræðsluáróðri. Þetta kom fram í þingræðu sem Brynhildur flutti á ... Lesa »

Framsækin nútímatónlist

NeoN tríó heldur tónleika með framsækinni og skemmtilegri nútímatónlist í Hofi á Akureyri í dag, föstudaginn 20. september kl. 18:00. Ókeypis er inn og allir velkomnir. NeoN trio er skipað ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fær SVA, segir ungur maður sem hafði samband við blaðið. „Ég vil hrósa vagnstjórum þar fyrir kurteisi og tillitssemi í framkomu. Einnig er um að gera að lýsa ánægju með að ferðirnar með vögununum ... Lesa »

Skoða meira