Undanfarin ár hefur frisbígolf eða „folf“ náð fótfestu hér á landi og eru vinsældir þess stöðugt að aukast. Frisbígolf er spilað með frisbídiskum og takmarkið er að kasta diskunum í sérhannaðar körfur í sem fæstum skotum. Komnir eru 6 sérhannaðir vellir auk þess sem folfkörfur eru víða. Nýjasti og vinsælasti völlurinn er á Klambratúni en notkun hans hefur slegið öll met það sem af er sumri.
Á Akureyri er 9 körfu völlur að Hömrum við Kjarnaskóg og verður á morgun, laugardag, haldin kynning á þessari skemmtilegu íþrótt frá kl. 14-17 á vellinum að Hömrum. Eru allir áhugasamir hvattir til að koma og prófa.
Um morguninn verður haldið frisbígolfmót og hefst keppni kl. 11. Keppt verður í fjórum flokkum; Opnum-, kvenna-, barna- og byrjenda.
Þátttaka er ókeypis.




