Ungmenni sem ekki býr heima hjá sér er töluvert líklegra til að leita til sálfræðings en börn foreldra sem búa í heimahúsi á Akureyri. Þetta kemur fram þegar gluggað er í skýrslu um sálfræðiþjónustu í VMA. Hjalti Jónsson, skólasálfræðingur við VMA, segir erfitt að alhæfa um skýringar á þessu. E.t.v. spili rask við flutninga og minna aðgengi að stuðningi foreldra brottfluttra barna inn í. Þá kunni einnig á hinn bóginn að vera skýring að foreldrar barna sem hafa flutt búferlum til Akureyrar séu meðvitaðri um hugsanlega vanlíðan barna sinna vegna flutninganna, þeir séu betur á verði og hvetji börn sín til að leita sér aðstoðar.
Þjónustan var nemendum að kostnaðarlausu. Á vorönn komu 86 nemendur í 219 viðtöl sem gerir þrjú viðtöl á hvern virkan kennsludag. Einstaklingviðtölin hverfðust um vanlíðan af ýmsu tagi s.s. þunglyndi, kvíðaraskanir, slæmar heimilsaðstæður, ofbeldi og áfengis- og vímuefnamisnotkun. Oft vísaði skólasálfræðingur á viðeigandi stofnanir.
Sjá bls. 13 í blaði vikunnar




