Jón Óðinn Waage, fyrrum lögreglumaður á Akureyri, sjálfsvarnarkennari og dyravörður tjáði sig á Facebooksíðu sinni um handtökuna sem átti sér stað í Reykjavík nýlegaog náðist á myndband sem mikil umræða er um í netheimum núna.
„Ég er menntaður lögreglumaður, starfaði sem slíkur í 5 ár. Ég er líka sjálfsvarnarkennari og hef verið það núna í 30 ár. Einnig starfaði ég í mörg ár sem dyravörður. Ég þekki því málaflokkinn mjög vel. Meðan ég vann i lögreglunni vann ég með mörgum eðalmönnum, mönnum sem að oftar en ekki reyndu að greiða götu ólánsfólks og sýndu því oftar en ekki mikið umburðarlyndi. Þessir menn vissu að í þessu starfi hittir maður oft fyrir fólk í sínu versta ástandi. Lögreglustarfið er mjög erfitt og vanþakklátt. Til þess að vinna það vel er nauðsynlegt að hafa traust fólksins, það traust er ekki sjálfgefið og þarf að vinna fyrir því,“ segir Jón Óðinn.
Hann gagnrýnir þá aðferð að nota lögreglubíl til að stugga við konunni sem og það að enginn lögreglumannanna hafi stigið út úr bílnum til að ræða við konuna.
„…að handtaka manneskju sem að varla stendur á fótunum er ekki gert svona, þetta er ekkert annað en árás. Þegar þú beitir valdi verður þú að hafa stjórn á því sem þú gerir, því er alls ekki til að dreifa þarna. Því miður koma nú fram lögreglumenn hver á fætur öðrum og réttlæta þessar aðfarir, það finnst mér vera ömurlegt, ekkert minna. Ég hef mikla samúð með starfsaðstæðum og kjörum fyrrum starfsbræðra minna, þess vegna svíður mér þegar störf þeirra og orðspor er skaðað af þeim sjálfum, það er engin þörf á því. Þeir sem telja þetta eðlilegar aðfarir eiga ekki að starfa í lögreglunni. Á mínum starfsferli var nokkrum sinnum hrækt á mig og vinnufélaga mína, við reiddumst alltaf þegar þetta var gert, en aldrei var lífi og limum þess sem hrækti stefnt í voða og ég man aldrei eftir neinum sýkingum af þeim völdum“.





