Kjúklingapottur

Kjúklingapottur

Kjúklingapottur

Þetta er alveg geggjaður kjúklingapottréttur sem tekur um hálftíma að útbúa. Fljótlegur og frábær á virku kvöldi.
Láttu ekki fjölda hvítlauksrifjanna skelfa þig. Bragðið breytist í sætt og kryddað og ég gæti trúað að hægt væri að plata hvítlaukshatara til að borða þennan rétt.

Þú getur notað kjúklingabringur, kjúklingalundir eða úrbeinuð læri í réttinn.

Kjúklingapottur

  • 5 msk sesam olía
  • 1 msk maísmjöl
  • 18 hvítlauksrif
  • 10 2mm þykkar sneiðar engiferrót
  • 1 kg kjúklingakjöt
  • 1/2 dl soja sósa
  • 1/2 dl hrísgrjónaedik eða Mirin
  • 5 msk hunang (3 ef þú notar mirin)
  • gott búnt fersk basilikka, söxuð
  • 5 vorlaukar, í bitum

Undirbúningur: 5 mínútur
Eldunartími: 30 mínútur

Skerðu kjúklinginn í bita. Hrærðu saman 2 msk af sesam olíunni við 1 msk maísmjöl og nuddaðu inn í kjúklinginn. Settu til hliðar í 5 mínútur.

Hitaðu 3 msk af sesam olíu í stórri pönnu eða potti og steiktu hvítlauk og engifer í 1-2 mínútur.

Bættu nú kjúklingabitunum út í og brúnaðu vel á öllum hliðum.

Settu sojasósuna, Mirin (eða hrísgrjónaedik) ásamt hunangi út í pottinn og hrærðu vel til að blandist við allan kjúklinginn. Athugaðu að Mirin er sætt hrísgrjónavín og ef þú notar það þá notarðu minna af hunangi en ef þú notar hrísgrjónaedik. Mirin er hægt að fá á stöðum sem selja vörur til sushi gerðar, en hrisgrjónaedik færðu nánast í hvaða stórri matvöruverslun sem er í dag.

Láttu suðuna koma upp og lækkaðu svo hitann. Láttu malla án loks í um 20 mínútur eða þar til sósan er orðin þykk og kjúklingabitarnir eldaðir í gegn.

Bættu þá basilikku og vorlauknum út í og hrærðu vel, láttu malla í 2 mínútur.

Berðu fram með hrísgrjónum eða núðlum.

Skottsala í Vaglaskógi

Steinþór Árdal og Sindri Geir Sindrason reka Verslunina í Vaglaskógi og næsta sunnudag milli kl. 11-16 munu þeir standa fyrir skottsölu á bílastæðinu við verslunina. „Við héldum ... Lesa »

Siglfirski síldarsöltunarhópurinn í Svíþjóð

Þriðju norrrænu strandmenningarhátíðinni lauk í gær, en hún var nú haldin í Karlskrona í Svíþjóð. Íslenskir þátttakendur voru tuttugu talsins og mjög sýnilegir. Átta manna hópur ... Lesa »

Innanríkisráðuneyti leitar upplýsinga um samning vegna þyrluferða

Innanríkisráðuneytið sendi nú í byrjun júlí sveitarfélaginu Dalvíkurbyggð bréf þar sem óskað er eftir afriti af samningum sem gerðir voru við ferðaþjónustufyrirtækið Bergmenn ... Lesa »

Miðaldadagar á Gásum - kynningarmyndband

Miðaldadagar verða haldnir á Gásum um miðjan júlí, nánar tiltekið 19. - 21. júlí en þetta er í 10. skiptið sem þeir eru haldir. Þar er reynt að endurskapa lífið eins og það gæti ... Lesa »

Píanótónleikar í Akureyrarkirkju

Í dag, sunnudaginn 14. júlí, kl. 17 verða píanótónleikar í Akureyrarkirkju en þá leikur Peter Maté verk eftir Rachmaninoff, Liszt, Beethoven og Þorkel Sigurbjörnsson. Peter Máté er af ... Lesa »

Alla fyrir alla

Sýningar Öllu, Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, voru opnaðar laugardagskvöldið 22. júní s.l. og eru alls tíu, í sjö sýningarrýmum í Listagilinu á Akureyri og nágrenni þess. Alla vinnur ... Lesa »

Broddur til sölu!

Sumardagur á sveitamarkaði í Eyjafjarðarsveit hefur nú göngu sína áttunda sumarið. Markaðurinn er eins og áður á blómum prýddu torgi Gömlu garðyrkjustöðvarinnar við ... Lesa »

Listasmiðja á Siglufirði

Verkefnið Reitir býður þessa dagana 30 einstaklingum víðsvegar að úr heiminum til Siglufjarðar að taka þátt í tilraunakenndri nálgun á hinni hefðbundnu listasmiðju. Reitir byggja á ... Lesa »

Kjúklingapottur

Þetta er alveg geggjaður kjúklingapottréttur sem tekur um hálftíma að útbúa. Fljótlegur og frábær á virku kvöldi. Láttu ekki fjölda hvítlauksrifjanna skelfa þig. Bragðið breytist ... Lesa »

Strákum enn sagt að harka af sér

Töluvert fleiri stúlkur en drengir leituðu sér sálfræðiaðstoðar innan veggja Verkmenntaskólans á Akureyri í fyrravetur. Þetta kemur fram í ársskýrslu um sálfræðiþjónustu í ... Lesa »

Ráðherrasprenging - myndband

Í dag sprengdi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, fyrstu formlegu sprenginguna fyrir Vaðlaheiðargöngum. Heyrðist sprengingin vel til ... Lesa »

Sýningu Hlyns að ljúka

Nú líður að lokum sýningar Hlyns Hallssonar í Kartöflugeymslunni í Listagilinu á Akureyri. Síðasti sýningardagur er föstudagurinn 12. júlí og sýningin er opin daglega kl. 14-16. Á ... Lesa »

Kynning á frisbígolfi

Undanfarin ár hefur frisbígolf eða „folf“ náð fótfestu hér á landi og eru vinsældir þess stöðugt að aukast. Frisbígolf er spilað með frisbídiskum og takmarkið er að kasta ... Lesa »

Lof og last

Lof og last

Lof fær Gallabuxnabúðin á Akureyri fyrir að vera með eina gínu sem er „ekki undir kjörþyngd“. Kannski er það einsdæmi meðal norðlenskra verslana, segir kona sem sendi blaðinu bréf. ... Lesa »

Ekki vegið að einstaklingum

Mikil viðbrögð hafa orðið í kjölfar viðtals semblaðið birti við Ásbjörn Björgvinsson í síðustu viku þar sem Ásbjörn setti spurningamerki við óheft þyrluflug og hugsanlega ... Lesa »

Forvarnir gegn nauðgunum

Allar sveitarstjórnir landsins hafa fengið hvatningu frá Saman-hópnum um að hugað verði að forvarnarstarfi í tengslum við bæjar- og útihátíðir í sumar. Nú þegar verslunarmannahelgin ... Lesa »

Unglingavinnan setji bæinn á hausinn?

Unglingar á Akureyri sitja ekki við sama borð og margir innlendir jafnaldrar þeirra segir móðir barns sem stundar unglingavinnu hjá Akureyrarbæ í sumar. Móðirin segir að þeir unglingar ... Lesa »

Pödduganga í Kjarnaskógi

Á laugardaginn mun Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur stýra pöddugöngu í Kjarnaskógi. Lagt verður af stað frá Kjarnakoti kl. 13.30 en Bjarni mun fræða þátttakendur um hvaða ... Lesa »

Alfreð Gíslason heiðraður

Handboltakappanum Alfreð Gíslasyni var í dag veitt heiðursviðurkenning íþróttaráðs Akureyrar og Afrekssjóðs Akureyrar við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi. Við það ... Lesa »

Jón Óðinn Waage

Löreglustarfið erfitt og vanþakklátt en traust ekki sjálfgefið

Jón Óðinn Waage, fyrrum lögreglumaður á Akureyri, sjálfsvarnarkennari og dyravörður tjáði sig á Facebooksíðu sinni um handtökuna sem átti sér stað í Reykjavík nýlegaog náðist á ... Lesa »

Ráðherrasprenging

Búið er að sprengja á annan tug metra inn í bergið vegna Vaðlaheiðarganga. Alls vinna nú um 30 starfsmenn við verkið en þeir verða allt að 60 þegar mest verður. Þrjár vaktir verða ... Lesa »

Þetta er 100 sinnum verra en skelfilegt

Nýjasta afurð félaganna Dabba Rún, Sigga Rún, Þórhalls, Hólmars og Péturs er þetta myndband sem sjá má hér að neðan. „Þetta er 100 sinnum verra en skelfilegt,“ sagði Dabbi í ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

HEYRST HEFUR að gríðarfjöldi góðra gesta hafi heimsótt Akureyri vegna Pollamótsins um síðustu helgi. Ekki bar skugga á, þótt veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska. Settu herdeildir ... Lesa »

4G þjónusta komin í loftið í Eyjafirði

Akureyri og nærliggjandi sveitir eru komnar í 4G netsamband, eftir að slíkir sendar á vegum Vodafone voru formlega teknir í notkun í morgun. 4G þjónusta Vodafone nær til sumarhúsasvæða í ... Lesa »

Aðsóknarmet en engir peningar fyrir myndlist

Þegar rúm vika var liðin frá opnun Réttardags Aðalheiðar Eysteinsdóttur í Listagilinu á Akureyri var búið að skrá á annað þúsund gesti í skráningarkerfi Listasafnsins. Er þá ekki ... Lesa »

Skoða meira