HEYRST HEFUR að gríðarfjöldi góðra gesta hafi heimsótt Akureyri vegna Pollamótsins um síðustu helgi. Ekki bar skugga á, þótt veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska. Settu herdeildir ungra fótboltakappa mark sitt á bæjarbraginn, sundlaugar voru fullar af smáu fólki, veitingastaðir möluðu gull og allt eins og best verður á kosið. Hefur heyrst að framkvæmd þessa móts sé til mikillar fyrirmyndar, enda byggt á markvissu sjálfboðastarfi og áralangri reynslu.
HEYRST HEFUR að Ljótu hálfvitarnir hafi verið hissa og þakklátir á því að á fullt var á öllum tónleikunum sem þingeyska hljómsveitin hélt á Græna hattinum um síðustu helgi. Þar réð gleðin ríkjum eins og vera bera þegar hin níu manna stórsveit kemur saman. Ekki síst þótti fjölskyldudagskráin á Græna hattinum ganga vel á laugardaginn, enda stutt í barnið hjá hinum ljótu hálfvitum, sem flokkast undir meðmæli…
HEYRST HEFUR að Kristján Jóhannsson stórsöngvari hafi ekki alls fyrir löngu komið inn á norðlenskt hótel og verið vafrandi í móttökunni. Þar voru til sölu ýmsir geisladiskaren engir diskar þó meðð hetjutenórnum akureyrska. Kristján mun hafa undið sér að starfsmannai móttökunnar og sagt í léttum dúr: „Vantar ekki diska hér með Kristjáni Jóhannssyni?“ Svo illa vildi til að starfsmaður móttökunnar, var nýfluttur heim eftir dvöl í útlöndum og hafði eki fylgst með íslenskum tónlistarmönnum. Sa mun þvi hafa svarað: „Kristján Jóhannsson? Hver er það?“




