Handboltakappanum Alfreð Gíslasyni var í dag veitt heiðursviðurkenning íþróttaráðs Akureyrar og Afrekssjóðs Akureyrar við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi. Við það tækifæri voru honum einnig veitt sérstök heiðursverðlaun KA. Alfreð hefur á löngum ferli sínum víða gert garðinn frægan hvort tveggja sem handknattleiksmaður og þjálfari.
Alfreð Gíslason fæddist á Akureyri 1959 og ólst þar upp. Hann hefur átt ríkan þátt í uppgangi handboltans þar í bæ og á Íslandi öllu. Undir stjórn Alfreðs náði KA sínum besta árangri; varð bikarmeistari í tvígang og Íslandsmeistari og deildarmeistari.
Alfreð hefur frá árinu 1997 þjálfað í Þýskalandi og m.a. gert Magdeburg og Kiel að Þýskalands- og Evrópumeisturum. Auk þess sem honum hefur hlotnast fjöldi einstaklingsverðlauna sem bæði þjálfari og leikmaður. Alfreð þjálfar lið Kiel í dag og þykir einn sá færasti í sínu fagi.




