Unglingar eru notaðir til hreinsunar- og fegrunarstarfa ýmiss konar. Myndin tengist ekki
efni fréttarinnar beint.
Unglingar á Akureyri sitja ekki við sama borð og margir innlendir jafnaldrar þeirra segir móðir barns sem stundar unglingavinnu hjá Akureyrarbæ í sumar. Móðirin segir að þeir unglingar sem séu í vinnuskólanum á Akureyri fái vinnu í 6 vikur frá 10. júní til 26. Júlí. Aðeins þrír tímar séu í boði á dag fyrir 14 ára unglinga.
„Þetta er lang launalægsti vinnuskólinn á landinu og þeir leyfa sér að borga þessum krökkum þennan tíma á þremur mánuðum. 1. júlí, 1. ágúst og 1.september. Bærinn færi kannski á hausinn ef þetta yrði borgað á styttri tíma. Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur,“ segir móðirin.
Akreyri vikublað reyndi að fá upplýsingar innan Akureyrarbæjar um hvort ástandið sé eins og móðirin lýsir því en hafði ekki erindi sem erfiði, m.a. vegna sumarfría starfsmanna bæjarins.
Í gögnum frá Akureyrarbæ kemur fram að Vinnuskólinn sé lokaður vikuna 8. - 12. júlí. Þar segir: „Fyrirhuguð er lokun Vinnuskólans vikuna 8. - 12. júlí. Vinnuskólinn fyrir 14 og 15 ára (1999 og 1998) er lokaður þessa viku en 16 ára (1997) hafa mörg hver tækifæri á að vinna þessa viku en geta vissulega fengið frí ef þess er óskað. Við óskum nemendum Vinnuskólans góðrar hvíldar og skemmtunar í næstu viku. Einnig segir á heimasíðu bæjarins: að í vinnuskólanum læri börn að sýna tillitssemi og virðingu.
Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi A-listans, hefur ítrekað lýst þeirri skoðun sinni að launin séu til skammar í vinnuskólanum og að þar sé börnum send kolröng skilaboð.




