Ráðherrasprenging - myndband

Ráðherrasprenging - myndband

Í dag sprengdi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, fyrstu formlegu sprenginguna fyrir Vaðlaheiðargöngum. Heyrðist sprengingin vel til Akureyrar eins og fyrrisprengingar sem verið hafa síðastliðna vikuna. Búast má við að Akureyringar verði minna varir við hávaða í sprengingum eftir því sem innar kemur í fjallið. Aðgangur að svæðinu var takmarkaður við boðsgesti en ljósmyndari Akureyrar vikublaðs tók þetta myndband til að deila með lesendum.

Miðaldadagar á Gásum - kynningarmyndband

Miðaldadagar verða haldnir á Gásum um miðjan júlí, nánar tiltekið 19. - 21. júlí en þetta er í 10. skiptið sem þeir eru haldir. Þar er reynt að endurskapa lífið eins og það gæti ... Lesa »

Píanótónleikar í Akureyrarkirkju

Í dag, sunnudaginn 14. júlí, kl. 17 verða píanótónleikar í Akureyrarkirkju en þá leikur Peter Maté verk eftir Rachmaninoff, Liszt, Beethoven og Þorkel Sigurbjörnsson. Peter Máté er af ... Lesa »

Alla fyrir alla

Sýningar Öllu, Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, voru opnaðar laugardagskvöldið 22. júní s.l. og eru alls tíu, í sjö sýningarrýmum í Listagilinu á Akureyri og nágrenni þess. Alla vinnur ... Lesa »

Broddur til sölu!

Sumardagur á sveitamarkaði í Eyjafjarðarsveit hefur nú göngu sína áttunda sumarið. Markaðurinn er eins og áður á blómum prýddu torgi Gömlu garðyrkjustöðvarinnar við ... Lesa »

Listasmiðja á Siglufirði

Verkefnið Reitir býður þessa dagana 30 einstaklingum víðsvegar að úr heiminum til Siglufjarðar að taka þátt í tilraunakenndri nálgun á hinni hefðbundnu listasmiðju. Reitir byggja á ... Lesa »

Kjúklingapottur

Þetta er alveg geggjaður kjúklingapottréttur sem tekur um hálftíma að útbúa. Fljótlegur og frábær á virku kvöldi. Láttu ekki fjölda hvítlauksrifjanna skelfa þig. Bragðið breytist ... Lesa »

Strákum enn sagt að harka af sér

Töluvert fleiri stúlkur en drengir leituðu sér sálfræðiaðstoðar innan veggja Verkmenntaskólans á Akureyri í fyrravetur. Þetta kemur fram í ársskýrslu um sálfræðiþjónustu í ... Lesa »

Ráðherrasprenging - myndband

Í dag sprengdi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, fyrstu formlegu sprenginguna fyrir Vaðlaheiðargöngum. Heyrðist sprengingin vel til ... Lesa »

Sýningu Hlyns að ljúka

Nú líður að lokum sýningar Hlyns Hallssonar í Kartöflugeymslunni í Listagilinu á Akureyri. Síðasti sýningardagur er föstudagurinn 12. júlí og sýningin er opin daglega kl. 14-16. Á ... Lesa »

Kynning á frisbígolfi

Undanfarin ár hefur frisbígolf eða „folf“ náð fótfestu hér á landi og eru vinsældir þess stöðugt að aukast. Frisbígolf er spilað með frisbídiskum og takmarkið er að kasta ... Lesa »

Lof og last

Lof og last

Lof fær Gallabuxnabúðin á Akureyri fyrir að vera með eina gínu sem er „ekki undir kjörþyngd“. Kannski er það einsdæmi meðal norðlenskra verslana, segir kona sem sendi blaðinu bréf. ... Lesa »

Ekki vegið að einstaklingum

Mikil viðbrögð hafa orðið í kjölfar viðtals semblaðið birti við Ásbjörn Björgvinsson í síðustu viku þar sem Ásbjörn setti spurningamerki við óheft þyrluflug og hugsanlega ... Lesa »

Forvarnir gegn nauðgunum

Allar sveitarstjórnir landsins hafa fengið hvatningu frá Saman-hópnum um að hugað verði að forvarnarstarfi í tengslum við bæjar- og útihátíðir í sumar. Nú þegar verslunarmannahelgin ... Lesa »

Unglingavinnan setji bæinn á hausinn?

Unglingar á Akureyri sitja ekki við sama borð og margir innlendir jafnaldrar þeirra segir móðir barns sem stundar unglingavinnu hjá Akureyrarbæ í sumar. Móðirin segir að þeir unglingar ... Lesa »

Pödduganga í Kjarnaskógi

Á laugardaginn mun Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur stýra pöddugöngu í Kjarnaskógi. Lagt verður af stað frá Kjarnakoti kl. 13.30 en Bjarni mun fræða þátttakendur um hvaða ... Lesa »

Alfreð Gíslason heiðraður

Handboltakappanum Alfreð Gíslasyni var í dag veitt heiðursviðurkenning íþróttaráðs Akureyrar og Afrekssjóðs Akureyrar við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi. Við það ... Lesa »

Jón Óðinn Waage

Löreglustarfið erfitt og vanþakklátt en traust ekki sjálfgefið

Jón Óðinn Waage, fyrrum lögreglumaður á Akureyri, sjálfsvarnarkennari og dyravörður tjáði sig á Facebooksíðu sinni um handtökuna sem átti sér stað í Reykjavík nýlegaog náðist á ... Lesa »

Ráðherrasprenging

Búið er að sprengja á annan tug metra inn í bergið vegna Vaðlaheiðarganga. Alls vinna nú um 30 starfsmenn við verkið en þeir verða allt að 60 þegar mest verður. Þrjár vaktir verða ... Lesa »

Þetta er 100 sinnum verra en skelfilegt

Nýjasta afurð félaganna Dabba Rún, Sigga Rún, Þórhalls, Hólmars og Péturs er þetta myndband sem sjá má hér að neðan. „Þetta er 100 sinnum verra en skelfilegt,“ sagði Dabbi í ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

HEYRST HEFUR að gríðarfjöldi góðra gesta hafi heimsótt Akureyri vegna Pollamótsins um síðustu helgi. Ekki bar skugga á, þótt veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska. Settu herdeildir ... Lesa »

4G þjónusta komin í loftið í Eyjafirði

Akureyri og nærliggjandi sveitir eru komnar í 4G netsamband, eftir að slíkir sendar á vegum Vodafone voru formlega teknir í notkun í morgun. 4G þjónusta Vodafone nær til sumarhúsasvæða í ... Lesa »

Aðsóknarmet en engir peningar fyrir myndlist

Þegar rúm vika var liðin frá opnun Réttardags Aðalheiðar Eysteinsdóttur í Listagilinu á Akureyri var búið að skrá á annað þúsund gesti í skráningarkerfi Listasafnsins. Er þá ekki ... Lesa »

Lokasýning á Lúkas í kvöld

Í kvöld kl. 20 verður lokasýning á leikritinu Lúkas sem Norðurbandalagið frumsýndi 21.júní sl. í Rýminu og vakið hefur mikla lukku áhorfenda. Verkefnið er hluti af Skapandi ... Lesa »

Pétur flýr rigninguna

Tilkynning hefur borist frá leikhópnum Pétri um að vegna óhagstæðra veðurskilyrða hafi verið ákveðið að færa náttúruvæna barnaleikritið Ævintýri í Álfheimum inn í Rósenborg, ... Lesa »

Uppbygging við Dreka án samráðs

Tilboð í smíði skálabyggingar Vatnajökulsþjóðgarðs við Dreka í Öskju voru opnuð í gær, skömmu eftir að blaðið fór í prentun. Bygging nýs skála mun að kosta sextíu milljónir ... Lesa »

Skoða meira