Á morgun, laugardag, verður fyrsta Alþjóðlega konukaffið þennan veturinn haldið á 2. hæð í Rósenborg. Þar hittast konur af ýmsum þjóðernum og fá sér kaffi og spjalla saman. Það er Alþjóðastofa og Zontaklúbbur Akureyrar sem standa að viðburðinum sem haldinn er einu sinni í mánuði yfir vetrartímann.
„Við viljum gefa konum tækifæri til að hittast og efla félagsleg tengsl auk þess að æfa sig í að tala á íslensku og tala um íslenska hluti. Þetta er svolítið eins og óvissuferð því enginn veit hvaða konur koma eða hvað þær tala um,“ segir Zane Brikovska, starfsmaður Alþjóðastofu, sem sér um verkefnið.
„Það er mikilvægt fyrir erlendar konur að hafa stuðning í samfélaginu,“ segir Zane og bætir því við að það sé ýmislegt sem Íslendingum finnist óþarfi að ræða sérstaklega, eins og t.d. að útskýra Fiskidaginn mikla á Dalvík, sem sé rætt í konukaffi.
Allar konur eru velkomnar á Alþjóðlegt konukaffi, ekki síst íslenskar. Kaffið hefst kl. 12 og stendur til kl. 14. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og boðið upp á kaffi og léttar veitingar.
-SBS
