Á Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins á Siglufirði verða stórtónleikar til heiðurs Gylfa Ægissyni og verður Gylfi sjálfur á staðnum og segir sögur og segir frá því hvernig lögin urðu til. Það er hljómsveitin Týr og sönghópurinn Sex um borð sem sjá um flutning en tónleikarnir verða haldnir í Bátahúsi Síldarminjasafns laugardaginn 22. júní og hefjast kl. 21.
Í upphafi tónleikanna verður frumsýnd stuttmynd um Gústa guðsmann en viðurnefni sitt hlaut Gústi fyrir að láta nær allan hagnað af útgerð sinni á bátnum Sigurvin renna til hjálparstarfs í Afríku. Sigurvin er nú geymdur á Síldarminjasafninu á Siglufirði og er verður stuttmyndin hluti af sýningu safnsins.
Af Síldarminjasafninu er það annað að frétta að síldargengið - landsliðið og og núverandi heimsmeistarar í síldarsöltun – heldur til Karlskrona í Svíþjóð á samnorræna strandmenningarhátíð þar sem þau verða með söltunarsýningar og kynna bæði söguna og Síldarminjasafnið fyrir hátíðargestum. Búist er við þúsundum gesta til Karlskrona, en í ár taka í fyrsta sinn allar Norðurlandaþjóðirnar þátt í strandmenningarhátíðinni sem er nú haldin í þriðja sinn – áður hefur hún verið á Húsavík og í Ebeltoft, Danmörku.
Þegar Anita Elefsen, starfsmaður Síldarminjasafnsins, fór til Karlskrona á fund skipuleggjenda strandmenningarhátíðarinnar kom í ljós að „þrátt fyrir aldagamla síldarsögu Svía þá eru þeir heldur fátækir af síldarminjum og fátt annað til en tunnur. Það er mjög kostnaðarsamt að flytja muni Síldarminjasafnsins út með gámi, svo ákveðið hefur verið að starfsmenn Blekinge Museum í Karlskrona fái það verkefni að smíða eftirmyndir af síldarkassa, saltkassa, bjóðum, tunnuhringjum og öðrum hlutum sem nauðsynlegir eru til síldarsöltunar.
Svo virðist sem Síldarminjasafnið geti mögulega lagt í útrás – og gert sýningar síldargengisins að nýrri útflutningsgrein!,“ frá þessu segir á vef Síldarminjasafnsins



