Akureyri 19.6.2013
Í kjölfar yfirlýsinga frá N3 samstæðunni um slit á samstarfi við Þórhall Jónsson og Hólmar Svansson við framkvæmd Dynheimaballs sjáum við okkur tilneydda til að senda frá okkur eftirfarandi yfirlýsingu:
Við hörmum það að okkar listræni og faglegi ágreiningur hafi komst á það stig að ekki sé hægt að halda Dynheimaball á Akureyri um Verslunarmannahelgina. Þetta er viðburður sem við erum mjög stoltir af því að hafa byggt upp. Fyrir 5 árum síðan héldum við fyrsta Dynheimaballið að undirlagi Margrétar Blöndal hátíðarstýru Einnar með öllu. Það er því alveg ljóst að við undirritaðir eigum allan rétt á notkun nafnsins Dynheimaball og höfum við þegar leitað lögfræðiálits fyrir að fá lögbann á ólögmæta nafnanotkun N3 enda eigum við nafnið Dynheimaball sem skráð vörumerki.
N3 félagarnir hafa undanfarið verið að þrýsta á okkur um að lækka aldurstakmark í 25 ár meðan við vildum helst hækka aldurstakmark í 40 ár þar sem 30 ára aldurstakmark sem við settum fyrir nokkrum árum er úr sér gengið. Markmiðið þeirra er að ná inn fleira fólki og spila breiðari tónlist með 90‘s technorusli eins og réði ríkjum í 1929 og fleiri stöðum, í stað dansvænnar og klassískrar diskó og nýbylgjutónlistar frá áttunda áratugnum. Þeir hafa ekki trú á því að fólk yfir 40 fari á dansleiki heldur vilji þetta fólk frekar hanga á pöbbum og hvíla lúin bein en að dansa vilt fram eftir nóttu. Bera þeir helst fyrir að líkamlegt atgervi þessa markhóps sé orðið ósköp lélegt. Við félagarnir erum þessu innilega ósammála enda hafa þessi böll verið þannig að úthaldið hefur verið ótrúlegt á öllum þeim dyggu diskóboltum og diskódívum sem mætt hafa á Dynheimaböll gegnum árin að legið hefur við slagsmálum að fá að hætta að þeyta skífum á umsömdum tíma.
N3 félagarnir eru svo bara að leggja stein í götu okkar og tryggja að ekki verði alvöru Dynheimaball á Akureyri með því að bóka húsið bæði kvöldin. Þeir setja helgina upp með 25 ára aldurstakmark á 90‘s ball á föstudagskvöld en nota svo 35 ára aldustakmark á 80‘s ball á laugardagskvöldið, sem var einmitt okkar hugmynd.
Þegar hefur verið haft samband við okkur frá öðrum útihátíðum um landið til að fá okkur til að halda alvöru 80‘s ball þar en í okkar huga er málið skýrt. Dynheimaball á að vera á Akureyri um Verslunarmannahelgina og það verður með þeirri tónlist sem viðburðurinn gengur út á. Að bjóða annað væru hrein vörusvik. Hver myndi vera sáttur við að ætla að kaupa eina með öllu (þar með talið kokteilsósu á Akureyri) og fá bara harða tvíböku með tómatsósu?
Við munum upplýsa um næstu skref okkar á næstu dögum en þangað til ekki æðrast við erum komnir til að vera og það verður ALVÖRU DYNHEIMABALL Á AKUREYRI UM VERSLUNARMANNAHELGINA!
Með sönnum diskókveðjum, Þórhallur Jónsson (aka í Pedro) og Hólmar Svansson



