Í yfirlýsingu sem N3 plötusnúðar sendu frá sér nú í kvöld kemur fram að Dynheimaballið um næstu verslunarmannahelgi sé í uppnámi vegna samstarfsörðugleika N3 plötusnúða við Hólmar Svansson og Þórhall Jónsson en saman hafa þeir staðið fyrir hinum vinsælu Dynheimaböllum í Sjallanum.
N3 plötusnúðar eru félagarnir Davíð Rúnar Gunnarsson, Sigurður Rúnar Marinósson og Pétur Guðjónsson sem allir voru á sínum tíma plötusnúðar á unglingaskemmtistaðnum Dynheimum á níunda áratug síðustu aldar.
Yfirlýsingin hljóðar svo í heild sinni:
Undanfarin ár höfum við haldið nostalgíuböll, þar sem fólk gleðst saman og miklir endurfundir heilu árganganna eiga sér stað. Þessir dansleikir hafa verið haldnir undir nafninu Dynheimaball. Fyrir þessa dansleiki höfum við sameinað krafta okkur við Hólmar Svansson og Þórhall Jónsson sem eru gamlir Dynheimaplötusnúðar. Nú stendur yfir undirbúningur á Dynheimaballi fyrir næstu verslunarmannahelgi, sem er fimmta verslunarmannahelgin í röð sem við höldum þetta ball. Og þar sem fólkið sem var í Dynheimum eldist þá vildum við taka næsta skref. Hingað til hefur verið 30 ára aldurstakmark á Dynheimaböllin en í ár vildum við breyta því.
Hugmyndin sem við lögðum fram var að skipta Dynheimaballinu á tvo dansleiki sitt hvort kvöldið um versló. Á föstudagskvöldinum vildum við hafa 25 ára aldurstakmark og spila 90´s tónlist. Á laugardagskvöldinu vildum við hafa sömu tónlist og hefur verið með 35 ára aldurstakmarki.
Í hádeginu í dag, 18.júní kynntum við þessa hugmynd fyrir þeim Hólmari og Þórhalli. Eftir stuttar útskýringar á hugmyndinni greip Þórhallur fram í fyrir okkur og sagði að svona yrði þetta ekki. Við reyndum í vinsemd að útskýra þetta en allt kom fyrir ekki. Hólmar og Þórhallur ruku þá á dyr og sögðust vera hættir að starfa með okkur, þeir myndu bara gera þetta sjálfir. Þess vegna sjáum við okkur knúna til að senda frá okkur þessa yfirlýsingu.
N3 plötusnúðar eru upphafsmenn af Dynheimaböllum í þeirri mynd sem þau eru. Þrátt fyrir að Hólmar og Þórhallur hafi spilað í Dynheimum í gamla daga þá eru breyttir tímar og þeir trúlega hættir að skilja út á hvað þetta gengur sökum aldurs.
Við lýsum því hér með yfir að VIÐ munum halda Dynheimaball í ár og verður það haldið á tveimur kvöldum, föstudagskvöldinu og laugardagskvöldinu um verslunarmannahelgina. Öll önnur auglýst Dynheimakvöld eru vörusvik.
Með vinsemd og virðingu:
N3 plötusnúðar:
Davíð Rúnar Gunnarsson, Sigurður Rúnar Marinósson og Pétur Guðjónsson



