„Jú, það má segja að það sé óheppilegt að ég, sem einnig er starfsmaður Umhverfisstofnunar, eigi þetta fyrirtæki þegar svona kemur upp. Þetta er ekki heppileg staða,“ segir Bergþóra Kristjánsdóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnunar í Mývatnssveit.
Um helgina fór eiginmaður Bergþóru, Sæmundur Þór Sigurðsson, á jeppa í eigu Bergþóru, auk fleiri bílstjóra í Öskju á vegum fyrirtækisins Geo Travel með ferðamenn þrátt fyrir lokunarbann. Málið er komið til lögreglu sem mun beita sektum fyrir umferðarlagabrot, enda hefur verið talin hætta á að umferð geti valdið vegaskemmdum. Bergþóra ver ekki lögbrotið en hafnar því þó að spjöll hafi verið unnin í ferð Geo Travel á leiðinni í Öskju. „Vegagerðin lokaði veginum á þeim forsendum að umferð gæti valdið skemmdum en bílar eins og þeir sem fóru þarna um ollu ekki skemmdum á veginum, bílstjórarnir þekkja aðstæður vel. Ef hætta hefði verið á skemmdum hefðu bílstjórarnir snúið við,“ segir Bergþóra.
Gísli Rafn Jónsson aðaleigandi og framkvæmdastjóri hjá Mývatn Tours hefur ekið áratugum saman með ferðalanga í Öskju. Hann bíður þess enn að fá leyfi hjá Vegagerðinni til að fara Öskjuleið. Hann segir tekjutap fyrirtækis síns verulegt þar sem ferðirnar séu bókaðar fyrirfram en lög séu lög og þau beri að virða. „Svona brot er mjög slæmt fyrir ferðaþjónustuna í heild og alverst vegna tengingarinnar við Umhverfisstofnun. Þeir sem starfa þar á bæ hljóta að hafa auknar siðlegar skyldur þegar kemur að verndun náttúrunnar. Þetta hlýtur að rýra trú á Umhverfisstofnun og er stórvítavert fordæmi að mínu mati,“ segir Gísli Rafn.
Nánar verður fjallað um málið á bls. 2 í blaði vikunnar sem kemur á vefinn í kvöld og inn um lúgur Norðlendinga í fyrramálið



