Sumarflatir á golfvellinum voru opnaðar sl. helgi en kylfingar á Akureyri voru orðnir langeygir eftir opnuninni en flatirnar komu illa undan vetri. „Þrátt fyrir erfiðan vetur fór grasið fyrr af stað en vorið 2011 en þá varð engin spírun fyrr en í júlí en hófst núna fyrstu vikuna í júní,“ segir Halla Sif, framkvæmdastjóri GA.
Halla segir að aðgerðir sem gripið var til í vetur hafi skilað árangri en þá var klakinn gataður og líklegt er að það hafi loftað um og losað um uppsöfnuð eiturefni í jarðveginum eftir að gras hafi kafnað undir klakanum.
Flatirnar voru tappagataðar, sandaðar og svo sáð yfir og einnig skorið í flatirnar rásir fyrir fræin. „Það að hvíla flatirnar á meðan á uppgræðslu stendur flýtir mjög fyrir batanum og mun skila betri og sterkari flötum út sumarið. Flatirnar eru svo vökvaðar yfir nóttina. Nótin og dúkarnir auka hitann yfir daginn og halda raka í yfirborðinu“, segir Halla.
Halla segir enga ástæðu til að ætla annað en að flatirnar verði í mjög góðu standi fyrir Arctic open mótið sem hefst 27. júní nk.
„Ástand flatanna hefur batnað mjög hratt að undanförnu í því frábæra veðri sem við höfum notið og eru þær farnar að lofa mjög góðu. Það er því útlit fyrir gott golfsumar hjá okkur, þrátt fyrir erfiðasta vetur í manna minnum. Þakklæti fer til allra félaga fyrir mikla þolinmæði að undanförnu,“ segir á vefsíðu GA.


