Stjórnsýsluúttekt hefur verið gerð í Fjallabyggð og var skýrsla um málið rædd á almennum íbúafundi í fyrrakvöld á Siglufirði. Markmiðið með verkefninu er að koma fram með tillögur að hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins til að auka framlegð, m.a. til að standa undir nýjum framkvæmdum og lækka jafnvel skatta.
Í skýrslunni kemur fram að íbúum í Fjallabyggð fækkaði á milli ára öll árin nema 2011-2012, þá fjölgaði íbúum um fimm. Á tímabilinu 2002 til 2013 fækkaði íbúunum samtals um 530, eða um 20,8%. Frá sameiningarárinu 2006 og fram til 2013 fækkaði íbúunum um 284, eða um 12,4%. Það vekur athygli skýrsluhöfunda að skuldahlutfall sveitarfélagsins hefur lækkað frá efnahagshruninu árið 2008 og einnig hve vel hefur tekist að halda því nokkurn veginn í jafnvægi frá og með árinu 2007. Segir í skýrslunni að ekki séu mörg sveitarfélög á Íslandi með svo góða skuldastöðu sem Fjallabyggð.
Eigi að síður séu ýmsar fjárhagslegar blikur á lofti. Þannig segir um starfsmenn sveitarfélagsins: „Lagt til að sett verði á yfirvinnubann. Yfirvinna verði eingöngu heimiluð í algjörum undantekningar tilfellum. Sé yfirvinna nauðsynleg þurfi samþykki annað hvort bæjarstjóra eða fjármálastjóra í hvert skipti. Jafnframt verði samið þannig um fasta yfirtíð að hún nái yfir alla yfirvinnu og óþægindi utan vinnutíma.“
Meðal annarra skýrsluatriða má nefna að lagt er til að stöðugildi við tómstundastarf aldraðra ásamt stöðugildum með umsjón og ræstingu í Skálahlíð verði tekið til endurskoðunar. Lagt er til að þess verði gætt að þjónustu vegna málefna fatlaðra verði hagað þannig að tekjur, sem ætlaðar eru í málaflokkinn, standi ávallt undir útgjöldum og skili sveitarfélögunum framlegð. Ef afgangur verði af rekstrinum renni hann til sveitarfélaganna. Lagt er til að Fjallabyggð beiti sér fyrir því, með aðildar sveitarfélögunum, að yfirstjórn um málefni fatlaðra verði endurskoðuð. Stjórnun verði gerð markvissari og færð nær bæjarstjórnunum en verið hefur.



