Kynjajafnrétti er eitt af grundvallaratriðum Evrópusamrunans og þarf að samþætta það inn í öll stefnumarkmið ESB og hefur Evrópusambandið haft töluverð áhrif á þróun jafnréttismála innan aðildarríkja sinna.
Agnès Hubert, sérfræðingur um jafnréttismál innan ESB, heldur erindi á opnum fundi á Hótel KEA fimmtudaginn 20. júní kl. 12-13.
„Flestir eru sammála um að ESB hafi haft mikil áhrif á þróun jafnréttismála í aðildarríkjum ESB, en krafan um launajafnrétti hefur verið til staðar í sáttmálum sambandsins frá árinu 1958 og frá þeim tíma hefur ESB markvisst þróað stefnu um jafnréttismál kynjanna,“ segir í fréttatilkynningu um fundinn.
Agnés Hubert heldur því fram að kynjajafnrétti hafi verið mikilvægur þáttur í samruna Evrópu og sé jafnvel enn mikilvægari nú en áður ef horft er til þeirra efnahagslegu, félagslegu og pólitísku áskorana sem ESB stendur frammi fyrir. Í erindinu verður fjallað um hvernig áhrif frá stofnunum, háskólasamfélaginu og fleiri aðilum hafa mótað stefnu ESB í jafnréttismálum, helstu skref sem hafa verið tekin innan hennar og árangurinn metinn.
Agnès Hubert er hagfræðingur og stjórnmálafræðingur og starfar við stefnumótun í Evrópumálum hjá framkvæmdastjórn ESB. Hún hefur einnig starfað sem sérfræðingur hjá Evrópuþinginu og sem blaðamaður með efnahagsmál sem sérsvið.



