Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, hefur ekki enn svarað bréfi frá bæjarstjóra Akureyrar frá 30. ágúst sl. þar sem Eiríkur Björn Björgvinsson falaðist eftir fundi með borgarstjóranum vegna flugvallarmálsins. Í bréfi Eiríks segir að á sameiginlegum fundi bæjarstjórnar Akureyrar og borgarstjórnar Reykjavíkur 8. febrúar sl. hafi verið samþykkt samhljóða bókun þar sem borgarstjórn Reykjavíkur og bæjarstjórn Akureyrar ákváðu að efla samstarf sveitarfélaganna í framtíðinni. Samþykkt var að skipa formlegan samstarfstvettvang sem skipaður yrði fulltrúum frá hvoru sveitarfélagi og brugðust Akureyringar strax við og mönnuðu sinn hóp. Í bréfi Eiríks Björns segir: „Undirritaður óskar eftir viðbrögðum Reykjavíkurborgar vegna bókunarinnar frá 8. febrúar sl. og óskar vinsamlega eftir að borgarstjóri kalli samstarfsvettvanginn saman nú fyrri hluta septembermánaðar. Fulltrúar Akureyrarbæjar óska vinsamlega eftir að ræða á þeim fundi hugmyndir borgaryfirvalda um framtíð flugvallar í Vatnsmýrinni vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur.“
Spurður um þá stöðu að borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki brugðist við hinni sameiginlegu bókun síðan í febrúar og að borgarstjóri hafi ekki svarað bréfi bæjarstjóra enn, segir bæjarstjórinn á Akureyri: „Ég hélt þau meintu eitthvað með þessu þegar þau komu hingað og við funduðum saman, ég hélt að hugur fylgdi máli.“
Eiríkur Björn segir að Dagur B. Eggertsson hafi í óformlegu spjalli nýverið stungið upp á fundi en biðin sé óneitanlega orðin ansi löng. „Ég lýsi fullum stuðningi við þá baráttu sem nú fer fram með frumkvæði Norðlendinga um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar. Við teljum að það skipti máli að þessi samráðsvettvangur hluti á bæði sjónarmið, við komust ekki áfram án sameiginlegrar lausnar.“
-BÞ
