Akureyrarvaka hófst í gærkvöldi í prýðilegu veðri með Rökkurró í Lystigarðinum og Draugagöngu um Innbæinn. Dagskráin nær hápunkti sínum í dag með alls kyns uppákomum og viðburðum.
Í Listagilinu verður heilmikið um að vera en Listasafnið á Akureyri fagnar 20 ára afmæli sínu. Þar verður listmarkaður þar sem myndlistarmenn og handverksfólk kynna og selja verk sín í götunni frá kl. 13-17. Veitingastaðir í Gilinu og nágrenni bjóða upp á veitingar. Góms, félagarnir Georg Óskar og Margeir Dire, vinna stórt málverk undir berum himni. Tískusýning verður kl. 15 á rauða dreglinum og Jón Óli húðflúrari sýnir listir sýnar í anddyri Listasafnsins og býður upp á ókeypis húðflúr með merki Sjónlistamiðstöðvarinnar í tilefni dagsins. Stefán Boulter, sem sýnir í Listasafninu, verður með leiðsögn frá kl. 11-12 og 15-16 og leikin verður hugljúf tónlist.
Í Íþróttahöllinni verður hreyfidagur þar sem gestir geta kynnt sér það mikla íþróttastarf sem í boði er á Akureyri ásamt þeirri fjölbreytni sem líkams- og heilsuræktarstöðvar bæjarinns hafa uppá að bjóða. Líkamsræktarstöðvar bæjarins fá tækifæri til að vera með kynningartíma sem verða um 30 mín hver og aðildarfélög ÍBA verða með kynningu á sínu starfi. Einnig verða íþróttaverslanir með sölubása á staðnum.
Ýmsir tónlistarmenn spila í göngugötunni og í Hofi verður svokölluð Heimskringla en þar verður alþjóðlegt eldhús, barnagaman í umsjón FIMAK. Skemmtilegir leikir frá hinum ýmsu löndum, andlitsmálun, smíðaverkstæði, krítar og listilega flottar hárfléttur. Alþjóðlegur nytja- og handverksmarkaður. Einnig verður syrpa Akureyrarkvikmynda frá Kvikmyndasafni Íslands sýnd.
Margt fleira verður um að vera og dagskrána má lesa í heild sinni hér
Í kvöld verður blásið til Retro Stefson karnivals á sviði sem komið hefur verið fyrir neðst í Gilinu en þar verður hljómsveitin vinsæla Retro Stefson við völd og tekur á móti góðum gestum, meðal annars Helenu Eyjólfsdóttur og Pálma Gunnarssyni.
Þessar myndir tók Daníel Starrason í gærkvöldi.






















