Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur nú sent frá sér bráðabirgðaskýrslu um flugslysið sem varð við akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar um verslunarmannahelgina. Ekki er sett fram niðurstaða á rannsókninni en fram kemur að áframhaldandi rannsókn beinist meðal annars að því hvers vegna flugvélin missti hæð. Flak flugvélarinnar og hreyflar verða skoðaðir ásamt fluglagi og afkastagetu vélarinnar.
Sagt er frá tildrögum slyssins í skýrslunni en þau eru á þann veg að flugvélin var að koma úr sjúkraflugi milli Hornafjarðar og Reykjavíkur. Áhöfnin hafði samband við fluturninn og óskaði eftir að fljúga einn hring yfir bæinn og fékk það samþykkt. Skömmu síðar hafði flugturninn samband við áhöfnina tilkynnti að Fokker flugvél væri að fara á loft til norðurs og óskaði eftir því að áhöfnin myndi fylgjast með umferð. Áhöfnin staðfesti það og var þá við Kristnes og sagðist halda sig vestarlega.
„Vélinni var í kjölfarið flogið í átt að akstursíþróttabraut við Hlíðarfjallsveg. Þegar flugvélinni nálgaðist akstursíþróttabrautina í vinstri beygju, misst hún hæð og vinstri vængur hennar snerti jörð við hægri hlið akstursíþróttabrautarinnar með þeim afleiðingum að hún brotlenti. Ekki barst tilkynning um bilun eða neyðarástand frá áhöfn flugvélarinnar á meðan á fluginu stóð.“
Þyngdar- og jafnvægisútreikningar sýndu að flugvélin var innan þyngdar- og jafnvægismarka.
Skýrsluna má lesa hér.
-SBS

