Fjölmennasta ráðstefna skólafólks sem haldin er á landinu fer fram á Akureyri í dag en um 1.000 fulltrúar af af öllum skólastigum sitja ráðstefnu um menntavísindi sem fram sett var í Íþróttahöllinni í morgun. Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman skólafólk og stjórnendur af ólíkum skólastigum og stuðla að upplýsandi samræðu þeirra á milli, samfélaginu til heilla.
Heiti ráðstefnunnar er „Lærdómssamfélagið, samstarf og samræða allra skólastiga“. Aðalerindi ráðstefnunnar flytja breski prófessorinn Louise Stoll PhD og Birna Svanbjörnsdóttir menntunarfræðingur og doktorsnemi. Erindi Birnu heitir „Lærdómssamfélagið“ en Louise Stoll kallar erindi sitt „Professional learning society“.
Fyrri hluti ráðstefnunnar verður haldinn í Íþróttahöllinni en að loknum erindunum tveimur verður ráðstefnugestum skipt í umræðuhópa þar sem rætt verður um efni og inntak fyrirlestranna.
Að loknu hádegishléi verður ráðstefnunni fram haldið bæði í Brekkuskóla og Menntaskólanum á Akureyri þar sem boðið verður upp á um 50 athyglisverðar málstofur sem spanna allt litróf kennslufræðanna frá leikskóla til háskóla og allt þar á milli. Ráðstefnustjóri er Jón Már Héðinsson skólameistari.
Um er að ræða fjölmennustu ráðstefnu skólafólks sem haldin er á landinu og þá einu með starfmönnum allra skólastiga en öllum starfsmönnum leik-, grunn-, framhalds- og háskóla á landinu var boðið til ráðstefnunnar, auk starfsmanna símenntunarmiðstöðva.
Ráðstefnan er haldin á vegum Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar (SÍMEY), Akureyrarbæjar, aðildarfélaga KÍ á Norðurlandi, Miðstöðvar skólaþróunar HA, og framhaldsskólanna á Akureyri. Hópurinn hefur staðið að ráðstefnuhaldi á Akureyri um menntamál frá árinu 2006.
-fréttatilkynning

