Aðalfundur Eyþings, haldinn á Grenivík 27. og 28. september 2013 leggur áherslu á að fyrirhuguð stytting framhaldsskólanáms verði unnin í nánu samstarfi við sveitarfélögin. Það fjárhagslega svigrúm sem skapist verði nýtt til að bæta kjör og ná betri árangri í skólastarfi. Í grunnskólum verði jafnframt leitað leiða til að efla virðingu fyrir list- og verkgreinum. Bent er á mikilvægi þeirra sem lið í að draga úr brottfalli ungs fólks úr framhaldsskólum.
Fundurinn lýsir einnig yfir ánægju með undirskriftasöfnunina Hjartað í Vatnsmýrinni. Fundurinn leggst eindregið gegn því að miðstöð innanlandsflugs verði flutt úr Vatnsmýrinni. „Flutningur flugvallarins myndi draga verulega úr aðgengi íbúa landsbyggðanna að höfuðborginni og þar með heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu, viðskiptalífi og menningarlífi. Kostnaður við sjúkraflug mun aukast og öryggi sjúklinga minnka. Líkur eru á að flug myndi leggjast af til nokkurra staða. Flutningurinn myndi því hafa alvarleg áhrif á lífsgæði íbúa landsbyggðanna og auka verulega þann kostnað sem þeir bera.“
Fundurinn ítrekar að stutt verði við flugsamgöngur til og frá Þórshöfn, Vopnafirði, Húsavík og Grímsey. Flugsamgöngur séu ein af lífæðum þessara samfélaga sem nauðsynlegt sé að standa vörð um. Þá hvetur fundurinn „…stjórnvöld eindregið til að endurskoða álögur á innanlandsflug“.
-BÞ

