Benni tekur sig vel út á snjóbrettinu. Mynd af Facebooksíðu Benna
„Holy Moly! It seems that Akureyri is a snowboarding talent factory,“ segir á vefsíðu European snowboarding magazine þar sem birt er myndband af hinum kornunga Akureyring Benedikt Friðbjörnssyni leika listir sínar.
Benni komst í fréttirnar í fyrra þegar hann var talinn sá yngsti í heiminum sem vitað var að gæti farið heljarstökk aftur á bak á snjóbretti og var í kjölfarið boðið ásamt föður sínum á Shred Days-snjóbrettamótið í frönsku Ölpunum, þá aðeins sjö ára gömlum.
Hér má sjá myndband þar sem Benni sýnir leikni sína á snjóbretti og var tekið upp í fyrravetur og birt á vefsíðunni onboard.mpora.com

