Húsnæði Grasrótar að Hjalteyrargötu 20
Laugardaginn 5. október kl. 11-17 heldur Grasrót opið hús og matarmarkað í húsnæði sínu að Hjalteyrargötu 20. Húsið stendur við svæði Slippsins á Akureyri en áður fyrr voru þar skrifstofur Slippsins. Nú hefur fjöldi fólks vinnustofur í húsinu og sinnir þar list- og handverki af fjölbreyttum toga og á laugardaginn geta gestir kynnt sér þau fjölbreyttu verkefni sem þar er unnið að. Meðlimir Grasrótar eru nú yfir 30 talsins en þar fyrir utan hafa félagasamtökin Álka (félag áhugaljósmyndara) og Flugmódelfélag Akureyrar aðstöðu í húsinu.
Áhugi á mat úr héraði
Matarmarkaður verður haldinn á efstu hæð hússins en þar munu smáir matvælaframleiðendur á svæðinu kynna og selja sína vöru en flestir eru þeir meðlimir í Beint frá býli samtakanna. „Þarna verður nautakjöt, harðfiskur, kartöflur, geitakjöt, sauðaís, býflugnahungang, hrökkbrauð, konfekt, pestó, sultur og brauð, te og fjallagrös, svo eitthvað sé nefnt, en ég er örugglega að gleyma einhverju,“ segir Sigurlaug Leifsdóttir verkefnastjóri hjá Grasrót.
„Við höfum verið að halda markaði og opin hús af og til því við viljum endilega gefa fólki kost á að koma og skoða það sem við erum að gera hér í Hjalteyrargötunni. Í þetta sinn ákváðum við að hafa matarmarkað því við höfum fundið fyrir miklum áhuga á því að kaupa matvæli úr héraði og það er alveg í takt við það sem Grasrót stendur fyrir.“
-SBS

