Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi á Akureyri hafi vakið blendnar tilfinningar hjá Facebook-vinum sínum eftir að hann birti á vegg sínum mynd Harðar Geirssonar af C-17 flugvél frá bandaríska hernum sem flutti í síðustu viku búnað til Akureyrar í tengslum við æfingar og loftrýmisgæslu í nóvember. Flugvélin er herflugvél sem rifjar upp deildar meiningar meðal bæjarbúa á Akureyri um orrustuþoturnar sem ítrekað raska ró fólks í Eyjafirðinum fagra. Margir virðast þó hafa gaman af því að vera minntir á stríðsrekstur með hávaða orrustuvélanna og hefur heyrst að Oddur sé í þeim hópi því hann skrifaði á Facebook sína með mynd af herflugvélinni: „Alltaf gott að sjá verndarann“…

Heyrst hefur að mörgum framsóknarmanninum í norðlensku héraði sé ekki skemmt vegna þeirra ummæla Láru Hönnu Einardóttur, aktívista og sjálfstæðs rannsóknarblaðamanns og bloggara sem beindust gegn fyrsta þingmanni kjördæmisins í vikunni, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Lára Hanna er að rannsaka ummæli forystufólks ríkisstjórnarinnar fyrir kosningar og bera þau saman við efndir. Hún skrifaði m.a. í athugasemd: „Nú er ég komin í kjördæmaþátt Stöðvar 2 í Norðausturkjördæmi - þangað sem SDG flutti lögheimili sitt á eyðibýli til að bjóða sig fram í kjördæminu. Allir vita að slíkt er svik og spilling - en láta sem ekkert sé. Merkilegt.“

Heyrst hefur að gamlar væringar milli Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra og Þorvaldar Ingvarssonar hafi verið rifjaðar upp í tengslum við ráðningu nýs forstjóra Landspítalans. Þorvaldur sem hrökklaðist á brott frá Akureyri eftir mikinn blús sem tengdist samstarfsvanda á spítalanum og getuleysi fyrri heilbrigðisráðherra til að taka á vandanum þótti vel koma til greina sem forstjóri Lansans og var hans nafn nefnt opinberlega. Hefur hins vegar heyrst að Kristján Þór hafi aldrei fyrirgefið Þorvaldi þegar hann hugðist marka sér spor í landsmálapólitíkinni fyrir Sjálfstæðisflokkinn og bauð sig fram í fyrsta sæti til höfuðs Kristjáni Þór um árið. Fyrir vikið hafi sú hugmynd verið langsótt…

Heyrst hefur að Andrea Hjálmsdóttir, bæjarfulltrúi VG, sé ekki hress með hvernig fjallað var um Akureyri í Mogganum um síðustu helgi. Blaðið gaf þá út sérstakt Akureyrarblað en samkvæmt greiningu Andreu var talað við 16 karla en aðeins tvær konur. Valgerður Bjarnadóttir, fyrrum jafnréttisstýra hefur lagt orð í belg einnig og segir: „Er þetta ekki skrítið? Hvað eigum við að gera til að opna augu þeirra? Það hlýtur að vera til leið.“

Jón Óðinn Waage

Peningum ausið í rekstur meistaraflokka í fótbolta

Jón Óðinn Waage, fótbolta- og júdóþjálfari með meiru skrifar pistil á íþróttavefinn norðlenska nordursport.is þar sem hann segir allt of miklum pening vera ausið í fótboltavelli bæjarins, sérstaklega ... Lesa »

Nýliðakynning krulludeildar

Í kvöld, 7. október, stendur Krulludeild Skautafélags Akureyrar fyrir nýliðakynningu í Skautahöllinni á Akureyri. Nýliðamót er á dagskrá í framhaldinu. Krullufólk með reynslu verður á svellinu og ... Lesa »

Fullkomið jafnvægi fegurðar og ljótleika

Þegar ég hitti Hrafnhildi Hagalín leikskáld og Ingibjörgu Huld, fyrir nokkrum vikum og átti við þær viðtal vegna leikverksins Sek hafði ég kynnt mér umfjöllunarefni verksins en það er dómsmál frá 19. ... Lesa »

Er okkur alvara með norðurslóðir?

Tækifærin búa á norðurslóðum! Háskólinn og fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu skulu búa sig undir að miðja hins vestræna heims muni færast norður á bóginn. Þungamiðja heimsviðskipta mun liggja um pól öxul ... Lesa »

Eru söfn leiðinleg?

Ég skrifa stundum um söfn. En það er af því að það er megin starf mitt þessa dagana að hugsa um söfn. Innan greinarinnar, safnafræði, er ógrynni lesefnis en þegar ég fletti almennum dagblöðum og ... Lesa »

Kleppur er víða

Lengi vel var ég ömurlega fordómafull gagnvart geðsjúkdómum. Ég skildi þá ekki, þekkti þá ekki og fannst þeir óttalegur aumingjaskapur. Ég hafði aldrei verið í kringum fólk með geðsjúkdóma og þrátt ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi á Akureyri hafi vakið blendnar tilfinningar hjá Facebook-vinum sínum eftir að hann birti á vegg sínum mynd Harðar Geirssonar af C-17 flugvél frá ... Lesa »

Listamenn til láns á bókasafninu

Frá fimmtudeginum 10. október til fimmtudagsins 17. október verður ekki aðeins hægt að fá lánaðar bækur, tímarit og DVD diska á Amtsbókasafninu heldur verður hægt að fá lánaðan listamann. Það eru ... Lesa »

Blóðugur niðurskurður í Háskólanum á Akureyri

Störfum á vegum ríkisins fjölgaði í heild þrátt fyrir hrunið samkvæmt nýútgefinni skýrslu þar sem fjallað er um breytingar árin 2007-2011. Þrátt fyrir þetta hafa byggðir, ekki síst á Norður- og ... Lesa »

Lögsóknir gegn blaðamönnum geti haft mikil kælingaráhrif

Framkvæmdastjóri Pírata, Aðalheiður Ámundadóttir, telur mikilvægt að setja sérstök lög um vernd heimildarmanna á Íslandi. Þetta kom fram á lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri í síðustu viku þegar ... Lesa »

Komin bráðabirgðaskýrsla um flugslysið

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur nú sent frá sér bráðabirgðaskýrslu um flugslysið sem varð við akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar um verslunarmannahelgina. Ekki er sett fram niðurstaða á ... Lesa »

Hof og Hótel Kea í samstarf

Menningarhúsið Hof og Hótel Kea hafa undirritað samstarfssamning sem felur meðal annars í sér samsstarf í markaðsaðgerðum með áherslu á menningarbæinn Akureyri. „Það er auðvitað allra hagur að taka ... Lesa »

SúEllen á Græna hattinum

Hljómsveitin SúEllen sem ættuð er frá Neskaupsstað heimsækir höfuðstað Norðurlands um helgina og heldur útgáfutónleika á Græna hattinum á laugardagskvöld. Þar munu þeir félagar kynna nýja plötu sem ... Lesa »

Matarmarkaður hjá Grasrót

Laugardaginn 5. október kl. 11-17 heldur Grasrót opið hús og matarmarkað í húsnæði sínu að Hjalteyrargötu 20. Húsið stendur við svæði Slippsins á Akureyri en áður fyrr voru þar skrifstofur Slippsins. ... Lesa »

Dregið hefur úr jarðskjálftavirkni

Rétt eftir miðnætti í nótt mældist skjálfti 2,8 að stærð fyrir mynni Eyjafjarðar en heldur hefur dregið úr virkni hrinunnar sem hófst aðfaranótt 25. september sl. Stærsti skjálfti hrinunnar mældist ... Lesa »

1000 manna ráðstefna

Fjölmennasta ráðstefna skólafólks sem haldin er á landinu fer fram á Akureyri í dag en um 1.000 fulltrúar af af öllum skólastigum sitja ráðstefnu um menntavísindi sem fram sett var í Íþróttahöllinni í ... Lesa »

Akureyri framleiðir snjóbrettasnillinga

„Holy Moly! It seems that Akureyri is a snowboarding talent factory,“ segir á vefsíðu European snowboarding magazine þar sem birt er myndband af hinum kornunga Akureyring Benedikt Friðbjörnssyni leika ... Lesa »

Skurðgrafa fór á bólakaf

Í vikunni var verið að leggja loka hönd á hitaveitulögn sem liggur yfir Húsabakkaflóa í Skagafirði. Þá fór svo illa að skurðgrafa verktakans sem sér um verkið, Steypustöð Skagafjarðar, sökk á bólakaf ... Lesa »

Kona söguð í tvennt í Hofi

Töframaðurinn Einar Mikael sýnir í Hofi í kvöld en á sviðinu má búast við því að sjá konu sagaða í sundur, lifandi dýr, einn heppinn áhorfandi mun svífa í lausu lofti og hlutir hverfa og birtast á ... Lesa »

Peningagjöf aðstandenda

Aðstandendur Heiðu Rósu Sigurðardóttur sem lést 29. apríl á þessu ári komu saman í vikunni og færðu Skógarlundi, miðstöð virkni og hæfingar veglega peningagjöf til minningar um hana. Heiða Rósa naut ... Lesa »

Barnageðlæknafélag Íslands skorar á Kristján Þór

Barnageðlæknafélag Íslands hefur ítrekað lýst yfir áhyggjum af stöðum geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga og skorar á heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, að koma á skipulagi sem ... Lesa »

Brottrækir bófar í Eyjafjarðará

Ágúst Ásgrímsson, einn veiðivarða Eyjafjarðarár, stóð tvisvar sinnum menn að veiðum með ólöglegt agn um næstsíðustu helgi. Þetta kemur fram í Flugufréttum og er haft eftir Ágústi að í öðru tilvikinu ... Lesa »

LA frumsýnir krefjandi drama annað kvöld

Leikstjórinn, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir, segir nýja leikverkið nísta að sálarrótum. Nýtt leikverk verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar annað kvöld, Sek eftir Hrafnhildi Hagalín. Leikritið ... Lesa »

Enginn skandall og engar hallir

Ég varð eilítið hugsi þegar ég las niðurlagsorð í viðtali við Geir Kristin Aðalsteinsson forseta bæjarstjórnar í blaði Vikudags í liðinni viku, þar sem hann sagði að núverandi meirihluti skildi ekki ... Lesa »

Eyþing vill hafa flugvöll í Vatnsmýrinni áfram

Aðalfundur Eyþings, haldinn á Grenivík 27. og 28. september 2013 leggur áherslu á að fyrirhuguð stytting framhaldsskólanáms verði unnin í nánu samstarfi við sveitarfélögin. Það fjárhagslega svigrúm ... Lesa »

Skoða meira