Landsmót skáta er haldið á víxl við Úlfljótsvatn og á Hömrum á Akureyri. Í ár verður landsmótið norðan heiða. Búist er við um 2.000 þátttakendum á mótið. Einnig verða fjölskyldur í svokölluðum fjölskyldubúðum svo um 4.000 manns sækja Hamra heim dagana 20.-27. júlí í sumar í tengslum við landsmótið.
Fram kemur í svari Jóns Ingvars Bragasonar, viðburðastjóra Bandalags íslenskra Skáta, við fyrirspurn akv.is að innritunargjaldið á mótið fyrir börn sé 54.000 krónur. því má ætla að tekjur af innritunargjöldum skátakrakka verði um og yfir 100 milljónir króna.
Systkinaafsláttur er á mótið þannig að 10% afsláttur er af innritunargjaldi næsta barns. Fjölskylda með tvö börn þurfa því að greiða 102.600 krónur í innritunargjöld. Skátafélögin mörg hver hafa staðið fyrir fjáröflun til þess að vega upp á móti innritunargjaldinu.
Jón Ingvar vildi ekki svara því hversu margir væru búnir að greiða staðfestingargjald sem átti að vera búið að greiða fyrir 1. febrúar, en fresturinn var síðan lengdur fram í miðjan mars. „Það er vinnulag hjá okkur að gefa ekki upp þessar upplýsingar,“ Segir Jón Ingvar í svari við fyrirspurn.
-SA























