Til ömmu

Hljómsveitin Kjass. Mynd: Nanna Dís

Hljómsveitin Kjass. Mynd: Nanna Dís

Hljómsveitin Kjass sendi nýlega frá sér sín fyrstu lög en hljómsveitin hefur starfað í um hálft ár. Fanney Kristjánsdóttir, söngkona sveitarinnar er uppalin í Mývatnssveit en stundar nú söngnám við FÍH. „Við spilum frumsamin lög en höfum líka gert eigin útsetningar á íslenskum þjóðlögum og hefðbundnum sönglögum. Svo spilum við líka allskonar tónlist sem okkur finnst skemmtileg,“ segir Fanney en hljómsveitin hefur starfað saman í rúmlega hálft ár og komið fram á tónleikum norðan- og sunnan heiða. „Við stefnum á að spila á Norðurlandinu aftur í sumar enda voru viðtökurnar mjög góðar í fyrra,“ segir Fanney.

Hér fyrir neðan má hlusta á lagið Til ömmu en það var Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir sem samdi textann til ömmu sinnar Stínu og ömmu sinnar Lilju. Fanney samdi lagið og segist hafa leitast við að fanga barnslega orku, gleði og einlæga ást barns til ömmu sinnar. „Í myndbandið notuðum við svo myndir úr fjölskyldualbúmunum okkar og myndir frá vinum og kunningjum. Elsta myndin er frá árinu 1930 af heimilisfólkinu í Baldursheimi í Mývatnssveit, á þeirri mynd eru afabræður mínir og amma þeirra ,“ segir Fanney.

Hljómsveitina skipa, auk Fanneyjar, Anna Gréta Sigurðardóttir á píanó, Mikael Máni Ásmundsson á gítar, Óskar Kjartansson á trommur og Birgir Steinn Theodorsson á bassa. Róbert Steingrímsson sá um upptökur og hljóðvinnslu á lögunum.

Annað lag sem hljómsveitin hefur sent frá sér er útsetning Fanneyjar á hinu þekkta þjóðlagi Krummi svaf í klettagjá. „Ég vildi að útsetningin endurspeglaði íslenskan vetrardrunga og það hungur sem margur þarf að þola í gegnum hin ýmsu skeið lífsins og hversu langt menn og dýr eru tilbúin að ganga á hlut annarra til að fá það sem okkur hungrar í,“ segir Fanney.

Sigrún Sigurðardóttir

ZONTA segir NEI

Líkamlegar og andlegar afleiðingar ofbeldis á konur Ofbeldi gegn konum er alvarlegt heilbrigðisvandamál sem hefur einnig veruleg áhrif á félagslega ... Lesa »

LisaLisa-020

Lísa og Lísa – góðar saman!

Áhorfendur sem fylltu Rýmið sl. föstudagskvöld og nutu frumsýningar á Lísu og Lísu í boði leikstjórnar Jóns Gunnars og Leikfélags Akureyrar voru sumir ... Lesa »

Valdimar Gunnarsson

Niður í eyrar – út í hólma – Minningabrot

Ég er fæddur og uppalinn frammi í firði – eins og við Eyfirðingar segjum, um það bil í miðri byggðinni, þar sem kallað er Grundarpláss. Austan ... Lesa »

Michael Clarke

The Roads Part two

There are some pretty strange rules if you intend to try driving in Iceland. One of them is called “give way to the right”. You can be driving along ... Lesa »

Edward H. Huijbens

Edward í 2. sæti og Hildur Friðriksdóttir í því 3.

Edward H. Huijbens sigraði í kosningu um annað sætið á kjörfundi VG á Akureyri nú rétt í þessu. Edward hlaut 33 atkvæði af 44 greiddum atkvæðum Þar ... Lesa »

Sóley Björk Stefánsdóttir

Sóley Björk Stefánsdóttir leiðir VG á Akureyri

Sóley Björk Stefánsdóttir mun leiða lista VG á Akureyri t sveitarstjórnarkosninga í vor. Sóley Björk bar sigur úr býtum á flokksfundi hjá þeim í dag. ... Lesa »

Geir Kristinn Aðalsteinsson

,,Hluti af mér vill hætta“

L-listinn, sem vann sögulegan kosningasigur í sveitarstjórnarkosningunum árið 2010 hefur ekki lagt árar í bát og er hópurinn núna að vinna að því að ... Lesa »

eivor

Færeyingarnir koma – og sigra

Það var setið hvert sæti í Hamraborgarsal Menningarhússins Hofs á Akureyri laugardagskvöldið 15. febrúar, þegar Eivør Pálsdóttir mætti í fylgd ... Lesa »

Sóley Björk Stefánsdóttir

Lýðræði og lýðræði

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2010 á Akureyri voru nokkur umræðuefni meira áberandi en önnur. Það var miðbæjarskipulagið og þá sérstaklega ... Lesa »

thorsteinn_kruger

Þjóðarsátt um lág laun

Það þykir bæði gott og æskilegt í hverju ríki að sæmileg sátt ríki um helstu grundvallarmál. Að þjóðin gangi nokkurn veginn í takt og sé sammála um ... Lesa »

Jón Óðinn Waage pistlahöfundur skrifar

Mágur minn

Yngri systir mín er sjö árum yngri en ég. Þegar hún hafði þroska til fór hún að kíkja aðeins á hitt kynið eins og oft vill verða. Ég taldi best fyrir ... Lesa »

Tónlistarskólinn er til húsa í Menningarhúsinu Hofi

Dagur Tónlistarskólanna á morgun

Laugardaginn 22. febrúar heldur Tónlistarskólinn á Akureyri uppá dag tónlistarskólanna. Af því tilefni efnir skólinn til hátíðar í Hofi og býður á ... Lesa »

Aðalsteinn Arni Baldursson

Samningar undirritaðir: ,,Margklofin verkalýðshreyfing“

Samningar voru undirritaðir í dag hjá Framsýn og í gær hjá Einingu Iðju. Samningarnir eru til eins árs, eða til 28. febrúar 2015. Það sem kemur til ... Lesa »

Hótel Gígur

Hótelrými 19-faldast að verð­gildi í Mývatnssveitinni

Árið 1998 var greint frá því á forsíðu Dags-Tímans að bylting væri framundan í framboði á gistirými í Þingeyjarsýslu. Þá var Jón Ragnarsson nýbúinn að ... Lesa »