Fjórar erlendar hljómsveitir eru á Akureyri þessa vikuna og munu halda tvenna tónleika. Fyrri tónleikarnir eru í kvöld í Rósenborg kl 20:00 og þeir seinni á Græna hattinum á morgun, miðvikudag.
Enginn aðgangseyrir er á tónleikana í Rósenborg, miðinn hins vegar kostar 1.500 krónur á tónleikana á Græna hattinum. Þær hljómsveitir sem um ræðir eru eftirfarandi:
Byrta
Færeyski dúettinn Byrta er skipaður söngkonunni Guðrið Hansdóttir og Janusi Rasmussen, söngvara Bloodgroup. Byrta leikur kraftmikið og dansvænt rafpopp. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu breiðskífu í júní 2013 og hefur komið fram G Festival í Færeyjum og Iceland Airwaves.
Good Moon Deer
Íslenski rafdúettinn Good Moon Deer er skipaður Guðmundi Inga Úlfarssyni á hljóðgervla og Ívari Pétri Kjartansyni á trommur. Good Moon Deer leikur sjónræna og óhefðbundna ratónlist sem daðrar jafnt við Jazz og Teknó. Good Moon Deer hafa komið fram á tónlistarhátíðum á borð við Iceland Airwaves, Reykjavík Music Mess og Lunga.
Sea Change
Norska söngkonan Sea Change er undir sterkum áhrifum frá nýbylgjutónlist 9. áratugarins. Hún styðst við hljóðgervla, raddgervla og lykkjur og skapar sérstæða popptónlist sem hefur notið töluverða vinsælda um alla Evrópu.
Sekuioa
Sekuioa er dönsk raftónlistarsveit frá Kaupmannahöfn. Hljómsveitin spilar dansvæna raftónlist með lífrænum snertiflötum og hafa komið meðal annars fram á dönsku tónlistarhátíðunum Roskilde, Trailerpark og Ström.
























