Ástandið, hermennirnir og gula rósin

_D5A951177-23Haustið 1997 var ég á leið til Bristol til ársdvalar en var ekki búin að finna mér húsnæði. Hér voru þá staddir hjá mér gestir, Mary og Gordon Halford sem búa nærri Bristol. Ég hafði á orði að þau mættu láta mig vita ef þau heyrðu eða vissu um húsnæði miðsvæðis í Bristol. Viku síðar hringdi Gordon og sagði að þau hefðu heyrt af lausri íbúð sem ég gæti fengið og ég myndi sennilega ekki trúa því, en eigandinn, Geoffrey Brazier talaði íslensku. Ég hringdi út og viti menn, það stóð heima. Við töluðum saman á íslensku. Nokkru síðar var ég búin að koma mér fyrir í íbúð Jean og Geoffrey við Clifton Wood Road í Bristol.

Í ljós kom að Geoffrey hafði verið breskur hermaður á Íslandi á árunum 1942-1944 og dvaldi aðallega á Akureyri og í Borgarnesi. Hann var sendur til Íslands og var ætlað að vera túlkur því hann talaði norsku, hafði verið í Noregi sem unglingur með foreldrum sínum. Ekki dugði norskan hér á landi og var hann því sendur til Ólafsfjarðar í eins konar einangrun í tvo mánuði til að læra málið. Við töluðum oftast saman á íslensku árið mitt í húsinu hans, tæpum 50 árum eftir dvöl hans hér á landi. Geoffrey heillaðist af Íslandi og sagðist hafa byrjað að mála myndir sem varð svo til þess að eftir að stríðinu lauk, stundaði hann myndlistarnám í London og lifði síðan alla tíð af myndlistinni.

Þau hjónin voru afskaplega elskuleg og ég átti margar góðar stundir með þeim. Í byrjun desember þetta ár, þegar við vorum orðið vel kunnug, spurði ég Geoffrey hvort hann hefði ekki átt kærustu á Íslandi. Hann gaf ekki mikið út á það og en svo var það skömmu fyrir jól, þegar ég sat við eldhúsborðið með honum, að hann kom með gamlan slitinn skókassa og vildi sýna mér myndir sem hann átti frá Íslandsdvölinni. Þar var margt skemmtilegt að sjá, t.d. margar vetrarmyndir frá Akureyri. Hann sýndi mér líka myndir af þremur stúlkum og hermönnum í lautarferð, mynd af þessum stúlkum fyrir framan kaupfélagshúsið í Borgarnesi og síðan stærri mynd af einni stúlknanna. Mér var nokkuð ljóst að þessi stúlka hafði verið honum kærari en hinar. Mér datt í hug að spyrja hvort hann vildi ekki að ég hringdi í þær til að bera þeim kveðju hans eða fyndi út hvort þær væru á lífi. Þá sagði Goeffrey á ensku: „I would be very pleased.“

A2-0023Milli jóla og nýárs ætlaði ég að fara að hringja en hugsaði með mér hvað ég væri eiginlega búin að koma mér í og leist alls ekki á blikuna. Ég hafði mig þó í að hringja í konuna sem var frænka þeirrar sem ég taldi hafa verið Geoffrey kærust. Ég kynnti mig og sagði henni að ég ætti að flytja henni kveðju frá Geoffrey Brazier. Hún varð vægast sagt mjög glöð og sagði að hann hefði verið svo mikill herramaður (þ.e. ekki hermaður). Við spjölluðum dágóða stund og ég bað hana að láta frænku sína vita að ég myndi hringja í hana eftir tvo daga. Það gerði ég og þá höfðu þær komið sér saman um að hitta mig þegar ég færi aftur út því þær vildu senda honum pakka.

Skömmu eftir áramót þegar ég var komin til Reykjavíkur og á leið vestur í bæ til að hitta konurnar, kom ég við blómabúð og keypti fimm verulega stórar og fallegar gular rósir. Ég man meira að segja ekki eftir að hafa nokkurn tíma, hvorki fyrr né síðar keypt gular rósir og alls ekki svona stórar. Mér var tekið með kostum og kynjum og ég færði Ástu (dulnefni) að sjálfsögðu rósirnar. Hún hafði dekkað borð og allt mjög var mjög elskulegt. Við spjölluðum lengi. Þegar ég var að fara spurði ég hana hvort hún ætti ekki málverk eftir Geoffrey. Hún sagði að svo væri og fór með mig inn í annað herbergi. Þar hékk ein stór mynd á vegg. Á myndinni var máluð ein stór GUL rós.

Kristín Aðalsteinsdóttir

Kristín Aðalsteinsdóttir

Ég fór hlaðin gjöfum, myndum og með bréf til Bristol og færði Geoffrey. Daginn eftir skrapp ég niður og hitti hann. Hann var mjög ánægður með sendinguna, ekki síst að Ásta hafði sent honum nýja mynd af sér. Hann sýndi mér myndina og sagði: „Er hún ekki falleg, hún hefur ekkert breyst.“ Þau Geoffrey héldu bréfasambandi þar til Geoffrey lést árið 2005.

 

Sigrún Sigurðardóttir

ZONTA segir NEI

Líkamlegar og andlegar afleiðingar ofbeldis á konur Ofbeldi gegn konum er alvarlegt heilbrigðisvandamál sem hefur einnig veruleg áhrif á félagslega ... Lesa »

LisaLisa-020

Lísa og Lísa – góðar saman!

Áhorfendur sem fylltu Rýmið sl. föstudagskvöld og nutu frumsýningar á Lísu og Lísu í boði leikstjórnar Jóns Gunnars og Leikfélags Akureyrar voru sumir ... Lesa »

Valdimar Gunnarsson

Niður í eyrar – út í hólma – Minningabrot

Ég er fæddur og uppalinn frammi í firði – eins og við Eyfirðingar segjum, um það bil í miðri byggðinni, þar sem kallað er Grundarpláss. Austan ... Lesa »

Michael Clarke

The Roads Part two

There are some pretty strange rules if you intend to try driving in Iceland. One of them is called “give way to the right”. You can be driving along ... Lesa »

Edward H. Huijbens

Edward í 2. sæti og Hildur Friðriksdóttir í því 3.

Edward H. Huijbens sigraði í kosningu um annað sætið á kjörfundi VG á Akureyri nú rétt í þessu. Edward hlaut 33 atkvæði af 44 greiddum atkvæðum Þar ... Lesa »

Sóley Björk Stefánsdóttir

Sóley Björk Stefánsdóttir leiðir VG á Akureyri

Sóley Björk Stefánsdóttir mun leiða lista VG á Akureyri t sveitarstjórnarkosninga í vor. Sóley Björk bar sigur úr býtum á flokksfundi hjá þeim í dag. ... Lesa »

Geir Kristinn Aðalsteinsson

,,Hluti af mér vill hætta“

L-listinn, sem vann sögulegan kosningasigur í sveitarstjórnarkosningunum árið 2010 hefur ekki lagt árar í bát og er hópurinn núna að vinna að því að ... Lesa »

eivor

Færeyingarnir koma – og sigra

Það var setið hvert sæti í Hamraborgarsal Menningarhússins Hofs á Akureyri laugardagskvöldið 15. febrúar, þegar Eivør Pálsdóttir mætti í fylgd ... Lesa »

Sóley Björk Stefánsdóttir

Lýðræði og lýðræði

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2010 á Akureyri voru nokkur umræðuefni meira áberandi en önnur. Það var miðbæjarskipulagið og þá sérstaklega ... Lesa »

thorsteinn_kruger

Þjóðarsátt um lág laun

Það þykir bæði gott og æskilegt í hverju ríki að sæmileg sátt ríki um helstu grundvallarmál. Að þjóðin gangi nokkurn veginn í takt og sé sammála um ... Lesa »

Jón Óðinn Waage pistlahöfundur skrifar

Mágur minn

Yngri systir mín er sjö árum yngri en ég. Þegar hún hafði þroska til fór hún að kíkja aðeins á hitt kynið eins og oft vill verða. Ég taldi best fyrir ... Lesa »

Tónlistarskólinn er til húsa í Menningarhúsinu Hofi

Dagur Tónlistarskólanna á morgun

Laugardaginn 22. febrúar heldur Tónlistarskólinn á Akureyri uppá dag tónlistarskólanna. Af því tilefni efnir skólinn til hátíðar í Hofi og býður á ... Lesa »

Aðalsteinn Arni Baldursson

Samningar undirritaðir: ,,Margklofin verkalýðshreyfing“

Samningar voru undirritaðir í dag hjá Framsýn og í gær hjá Einingu Iðju. Samningarnir eru til eins árs, eða til 28. febrúar 2015. Það sem kemur til ... Lesa »

Hótel Gígur

Hótelrými 19-faldast að verð­gildi í Mývatnssveitinni

Árið 1998 var greint frá því á forsíðu Dags-Tímans að bylting væri framundan í framboði á gistirými í Þingeyjarsýslu. Þá var Jón Ragnarsson nýbúinn að ... Lesa »