Mörgæs í miðbæ Akureyrar?

Mörgæs í miðbæ Akureyrar?

Þessa mynd tók starfsmaður Akureyri Gift Shop af langvíunni þegar hún var að skottast í Hafnarstrætinu

„Er þetta ekki mörgæs?“ sögðu tveir menn og bentu á einmanalegan fugl sem spókaði sig við Umferðamiðstöðina á Akureyri í morgun. Þegar betur var að gáð reyndist fuglinn ekki mörgæs heldur langvía en hún er samt sem áður afar sjaldgæfur gestur á götum bæjarins.

Tveir starfsmenn Saga Travel, þeir Hörður Finnbogason og Gunnar Atli Fríðuson fóru til fundar við fuglinn sem reyndist hinn spakasti. „Þetta var ekki fullorðinn fugl og það var mjög auðvelt að nálgast hann, þeir eru oft mjög spakir ungarnir,“ sagði Hörður þegar blaðamaður spurði hann út í ævintýrið. „Við tókum hann bara upp og keyrðum með hann niður að sjó þar sem hann synti hinn glaðasti í burtu“.

Langvían er af mörgum talin harðbrjósta foreldri því ungarnir eru aðeins þriggja vikna þegar þeim er kastað úr hreiðrinu en fyrst um sinn hjálpar karlfuglinn unganum að læra að veiða. Þessi ungi var semsagt í skóla lífsins og sem betur fer fékk hann góða aðstoð en talið er að langvían geti ekki flogið nema að hún sjái hafið.

-SBS

Öruggur sigur Þór/KA á ÍBV í lokaumferðinni

Stúlkurnar í Þór/KA unnu öruggan heimasigur á ÍBV í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Leikið var á Þórsvelli við prýðisgóðar aðstæður. Sandra María Jessen skoraði tvö marka Þór/KA í ... Lesa »

Síðasti heimaleikur KA-manna var sigur

KA tók á móti Þrótti R. í síðasta heimaleik þeirra gulklæddu í sumar í dag. Leiknum lyktaði með 3-1 sigri KA, sem var mun sterkari aðilinn í leiknum. Með sigrinum skaust KA upp í 6. sætið en þar eru ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að klaufagangur í heilbrigðisráðuneytinu í tíð Ögmundar Jónassonar hafi að nokkru orðið til þess að Þorvaldur Ingvarsson, fyrrum lækningaforstjóri FSA, hafi ekki komið til greina sem ný ... Lesa »

Hjörleifur Hallgríms

Furðuleg afstaða bæjarstjórnar Akureyrar

Að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni er mál upp á líf og dauða ásamt fleiri atriðum. Hver sveitarstjórnin af annarri hefur lýst yfir stuðningi við það mál og hvatt fóllk til að vera með í ... Lesa »

Mikilvægt að kynna foreldrum rétt sinn í barnaverndarmálum

Þegar úrskurðað er um varanlegt fóstur barna sem tekin eru frá foreldrum sínum vegna ýmissa mála leggja starfsmenn barnaverndar viðkomandi sveitarfélags fram tillögu þess efnis til ... Lesa »

Hef gert heiðarlega tilraun til að vera eðlilegur!

Svarfdælingurinn Hugleikur Dagsson kom, sá og sigraði í Hofi um síðustu helgi. Þá hélt hann uppistand sem mæltist að sögn nærstaddra afar vel fyrir. Akureyri vikublaði lék forvitni á að vita meira um ... Lesa »

Akureyri keppir í Útsvarinu í kvöld

Lið Akureyrar keppir við lið Reykjavíkur í fyrsta þætti spurningaþáttarins Útsvars sem fram fer í kvöld. Fyrir hönd Akureyringa keppa þau Arndís Bergsdóttir, Haraldur Egilsson og Sigurður Erlingsson ... Lesa »

Hríseyingar funda um framtíðarmöguleika

Áhugahópur um framtíð Hríseyjar boðar til málþings laugardaginn 14. september nk. Umræðuefni fundarins verða m.a. atvinnumál, byggðaþróun, þjónusta við íbúa, samgöngur, sumarhús, afþreying, ... Lesa »

Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson

Ákvörðun um sviðsforseta frestað

Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson, frestaði í gær á fundi Hákólaráðs skipun nýs sviðsforseta hjá hug-og félagsvísindasviði Háskólans. Rektori ber að leggja mat sitt undir ráðið ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Seðlabankinn fyrir slæleg vinnubrögð og fúsk í málsókn sinni gegn Samherja. Svo skrifar karl. Hann segist ekki taka afstöðu til deilunnar sem slíkrar en ótrúlegt sé að sjá fjármunum ... Lesa »

Peningum ekki eytt í hausatalningu í strætó

Akureyrarbær og Reykjavíkurborg nota ólíkar aðferðir til að kanna fjölda farþega í strætó. Í bréfi sem nemendur í HÍ fengu sent nýlega býðst þeim vinna að telja farþega í strætó fyrir sunnan. Þar ... Lesa »

Segir barnafólki mismunað í Grímsey

Mayflor Perez Cajes, móðir ungs barns í Grímsey, telur leikskólaþjónustu óviðunandi í eynni. Grímsey sameinaðist Akureyrarkaupstað árið 2010 og hefur bærinn að sögn Mayflor ekki uppfyllt allar skyldur ... Lesa »

Héraðsdómur Norðurlands Eystra

Tókst að rota hnífamann eftir árás

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 12 mánaða fangelsi vegna sérlega hættulegrar líkamsárásar. Maðurinn stakk 2. júní sl. annan mann með hnífi í síðuna vinstra megin og tvisvar sinnum í ... Lesa »

Af Olsen og ömmu Dreka

Amma Dreki – í Jóni Oddi og Jóni Bjarna – var einhverskonar framúrstefnu geimamma. Að minnsta kosti þegar ég var að vaxa úr grasi fyrir um fjórum áratugum. Hún var skelegg og sjálfstæð – og ... Lesa »

Njáll Trausti Friðbertsson

Hjartað í Vatnsmýri

Í síðustu viku birtist grein eftir Loga Einarsson bæjarfulltrúa Samfylkingar undir heitinu „Heiftin um Reykjavíkurflugvöll“. Þar kallar hann eftir því að menn ræði saman á málefnalegan hátt og leiti ... Lesa »

Víti til varnaðar

Stúlka í grunnskóla á Akureyri varð nýlega fyrir því að mynd af henni, berri að ofan, sem hún sendi í gegnum forritið Snapchat fór í mikla dreifingu meðal grunnskólanema á Akureyri og hugsanlega ... Lesa »

Rekstur Akureyrarflugvallar í uppnámi vegna reglubreytinga EES

Ef meira en tvö hundruð þúsund farþegar á ári fara um flugvöll þá má ekki fjármagna rekstur hans með almannafé samkvæmt drögum að reglum um starfsemi flugvalla á Evrópska efnahagssvæðinu ... Lesa »

Brottfluttar akureyrskar á Hattinum

Söngkonurnar Sigrún Stella, Alma Rut og Maja Eir halda saman tónleika á Græna Hattinum í kvöld, fimmtudaginn 12. september kl. 21:00. Þær segjast mjög spenntar fyrir því að koma og syngja í sínum ... Lesa »

Ágúst Jensson ráðinn framkvæmdastjóri GA

Golfklúbbur Akureyrar hefur ráðið Ágúst Jensson sem framkvæmdastjóra en alls bárust 23 umsóknir um starfið. Ágúst hefur mikla reynslu sem nýtist í starfi en hann hefur að undanförnu starfað sem ... Lesa »

Minningarstund vegna fósturláta

Minningarstund vegna fósturláta verður haldin í Höfðakapellu á Akureyri fimmtudaginn 12. september kl. 16.30. Minningarstundin er hugsuð til að koma til móts við þau ótalmörgu sem upplifað hafa sorg ... Lesa »

Þórsarar spila í Garðabæ í kvöld

Þórsarar eiga ærið verkefni fyrir höndum í kvöld þegar þeir mæta Stjörnunni á heimavelli þeirra, Samsung-vellinum í Garðabænum. Leikurinn er liður í 19. umferð Pepsi-deildar karla í ... Lesa »

Pétur Snæbjörnsson

Hjartað slær á landsbyggðinni

Alveg er hún merkileg þessi umræða um Reykjavíkurflugvöll að því leyti hvernig tekst alltaf að afvegaleiða hana þannig að hún snúist um tilfinningar og aukaatriði. Það er ótrúlegt að um 60 þúsund ... Lesa »

Deiglan og Rýmið seld?

Bæjaryfirvöld á Akureyri velta nú fyrir sér sölu á nokkrum þekktum eignum bæjarins svo sem húsnæði LA, Rýminu, Deiglunni og gestavinnustofu í miðbænum. Um þetta varð gerð bókun á síðasta fundi ... Lesa »

Ný hraðahindrun skemmir bíla

Ný hraðahindrun á Mýrarvegi á Akureyri hefur verið gagnrýnd harðlega og hafa ökumenn staðhæft í samtölum við blaðið að hraðahindrunin sé bílum svo skæð, að jafnvel þótt ekið sé yfir hana á litlum ... Lesa »

Grunnskólabörn vakin kl. 6

Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar lét bóka á síðasta fundi sínum harðorð mótmæli vegna ónægju foreldra með skólaakstur. Í bókuninni segir ekki hafi verið haft samráð við skólanefnd vegna þeirrar ... Lesa »

Skoða meira