KA tók á móti Þrótti R. í síðasta heimaleik þeirra gulklæddu í sumar í dag. Leiknum lyktaði með 3-1 sigri KA, sem var mun sterkari aðilinn í leiknum. Með sigrinum skaust KA upp í 6. sætið en þar eru þeir jafnir Leikni með 32 stig. Það ræðst því í síðustu umferðinni hvort að KA endi í 6. eða 7. sæti 1. deildarinnar sumarið 2013.
Það viðraði vel til knattspyrnuiðkunnar á Akureyrarvellinum í dag, sem skartaði sínu fegursta. Það tók KA-menn ekki nema 11 mínútur að komast á blað og var þar að verki Ævar Ingi Jóhannesson. Hann skallaði fyrirgjöf Darren Lough í netið en nokkur reikistefna var um það hvort boltinn hafi verið inni eða ekki en aðstoðardómarinn Rúna Kristín var ekki í vafa og dæmdi mark. Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiks en hinn danski Carsten Pedersen fékk dauðafæri til þess að tvöfalda forystu KA á 45. mínútu en mistókst.
Strax í upphafi síðari hálfleiks jöfnuðu Þróttarar metinn eftir að KA-menn gerðu sig seka um mistök á miðjum vellinum. Fyrirliði KA, Atli Sveinn Þórarinsson, kom heimamönnum aftur yfir á 66. mínútu með góðum skalla og er Atli einn markahæsti maður KA í sumar. Þróttarar voru aldrei líklegir til þess að jafna metinn en Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði þriðja mark KA í uppbótartíma og lokatölur 3-1. KA mætir Grindavík, í Grindavík, í lokaumferðinni næstu helgi. Þá kemur það í ljós hvort að það verði 6. eða 7. sætið sem KA endar í. Grindvíkingar geta hinsvegar komist upp vinni þeir leikinn.
Myndir: Sævar Sigurjónsson
-SMS
siguroli@akv.is







